Fara á efnissvæði
29. apríl 2024

Mikil efling íþróttastarfs

Starfshópur um stöðu og réttindi afreksíþróttafólks skilar brátt tillögum sínum til mennta- og barnamálaráðherra. Áformin um stóreflingu afreksíþróttastarfs verða kynnt á opnum kynningarfundi á morgun, þriðjudaginn 30. apríl kl. 16:00 í Laugardalshöll og í streymi.

Að lokinni kynningu á niðurstöðunum verða pallborðsumræðar meðal fundargesta og bakhjarlanna sem standa að framkvæmdinni annars vegar og íþróttafólks og þjálfara sem aðgerðirnar beinast að hins vegar. Boðið verður upp á kaffiveitingar að fundi loknum.
 

Dagskrá:
 
•    Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra
•    Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármálaráðherra
•    Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra
•    Vésteinn Hafsteinsson, afreksstjóri ÍSÍ kynnir niðurstöður skýrslunnar
•    Pallborðsumræður
 
Fundurinn er öllum opinn en nauðsynlegt er að skrá sig. Mennta- og barnamálaráðuneytið hvetur öll áhugasöm um árangur og afreksstarf til að mæta.

Mikilvægt er að skrá sig á viðburðinn. Hægt er að velja á milli þess að mæta á kynninguna og fylgjast með henni í beinu streymi.

Skráning
Streymi

Mennta- og barnamálaráðuneytið og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) skrifuðu í byrjun síðasta árs undir samstarfssamning um stefnumörkun og uppbyggingu afreksíþróttastarfs á Íslandi. Vésteinn Hafsteinsson, afreksíþróttamaður og -þjálfari, var ráðinn til mennta- og barnamálaráðuneytisins til að leiða umbótastarfið sem formaður starfshópsins og móta breytingar með stjórnvöldum, auk þess og fylgja þeim eftir í framkvæmd. Hann var samhliða ráðinn sem afreksstjóri ÍSÍ.