Fara á efnissvæði

Styrkir

Lýðháskólastyrkir

Lýðháskólastyrkir

UMFÍ og Højskolernes Hus í Kaupmannahöfn eru með samstarfssamning um verkefni tengt námsdvöl íslenskra ungmenna í dönskum lýðháskólum. Højskolernes Hus heldur utan um alla lýðháskóla í Danmörku og því er námsframboðið fjölbreytt.

Markmið með styrkveitingunni er að gefa ungu fólki tækifæri til að víkka sjóndeildarhring sinn. Einnig tækifæri til að kynnast nýju tungumáli og menningu, auka færni sína og þekkingu á völdu sviði í gegnum óformlegt nám og styrkja leiðtogatogahæfileika sína um leið.

Umsóknarfrestir eru tvisvar sinnum á ári. Á haustin, ágúst/september, er opið fyrir umsóknir fyrir haustönn og heilt skólaár. Um áramót, desember/janúar, er opið fyrir umsóknir fyrir vorönn. 

Verkefni sem standa þarf skil á

Til þess að uppfylla kröfur um styrk þurfa umsækjendur að skila eftirfarandi verkefnum:

  1. Verkefni að eigin vali á meðan námsdvöl stendur. Umsækjendur geta valið að skila inn stuttu myndbandi, teiknimyndaseríu, lagi eða texta sem felur í sér upplifun eða reynslu af náminu. Skilafrestur er 10. nóvember 2023.
  2. Stutt lokaskýrsla sem felur í sér upplifun og lærdóm af náminu. Jafnframt þarf að fylgja með staðfesting á námsdvöl frá skólanum. Skilafrestur er 19. janúar 2024 / 28. júní 2024.
  3. Þeir nemendur sem hljóta styrk fyrir heilu skólaári (40+ vikur) þurfa jafnframt að standa skil af kynningu um skólann sinn, hvað hefur skólinn upp á að bjóða? Skilafrestur 23. febrúar.

Nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Sigurðardóttir. Netfang: ragnheidur@umfi.is 

Sækja um lýðháskólastyrk

Umsóknarfrestur fyrir vorönn 2024 er liðinn. Næsti umsóknarfrestur verður auglýstur í ágúst 2024.