Fræðslu- og verkefnasjóður
Markmið sjóðsins er að styrkja félags- og íþróttastarf ungmennafélagshreyfingarinnar í samræmi við stefnu UMFÍ, m.a. með því að auka menntun og þekkingu félaga innan hreyfingarinnar á íþróttagreinum, þjálfun í félagsmálum og félagsstarfi.
Rétt til umsóknar úr sjóðnum eiga sambandsaðilar UMFÍ, aðildarfélög sem eru virk í starfi og deildir innan þeirra. Einnig eiga stjórn og nefndir UMFÍ rétt á að sækja um styrk úr sjóðunum.
Athygli er vakin á því að sjóðurinn styrkir EKKI tækja-, áhalda- og búnaðarkaup, fundakostnað (þ.m.t. veitingar) og almennan rekstur félaga. Einnig er styrkur að öllu jöfnu aldrei hærri en 50% áætlaðs styrkhæfs kostnaðar, eða að hámarki 300.000kr. Stjóðsstjórn getur þó veitt hærri styrki í undantekningartilfellum.
Áherslur í úthlutun
Í samræmi við reglugerð sjóðsins leggur sjóðsstjórn áherslu á að veita styrki til verkefna sem:
- eru til þess að fallin að auka þekkingu og fagmennsku innan félags með fræðslu, fyrirlestrum og/eða námskeiðum.
- stuðla að aukinni útbreiðslu og/eða stofnun félags eða deilda.
- stuðla að aukinni þekkingu og varðveislu á menningu og sögu félags.
- eru til þess fallin að auka menntun þjálfara og dómara.
- eru í samræmi við auglýst áhersluatriði sjóðsins hverju sinni.
Áherslur fyrir úthlutanir 2023
Fyrir úthlutanir 2023 er lögð áhersla á útbreiðslu- og fræðsluverkefni. Að þessu sinni verður horft sérstaklega til verkefna sem stuðla að hreyfingu fyrir alla, sérstaklega ungt fólk. Þá eru veittir styrkir til að stunda rannsóknir á ýmsum þáttum íþróttastarfsemi í landinu. Einnig er horft til verkefna sem eru unnin fyrir börn og ungmenni og/eða með virkri þátttöku þeirra, þjálfun forystufólks, leiðbeinenda og sjálfboðaliða, nýjungar og þróunarverkefni. Að auki er horft til þess að styrkja átaksverkefni til aukinnar þátttöku á Unglingalandsmóti UMFÍ 2023.
Umsækjendur eru hvattir til þess að kynna sér vinnureglur og matskvarða sjóðsins. Umsókn þarf að hljóta að lágmarki 50 stig til þess að vera metin styrkhæf. Umsækjendur sem hljóta styrk þurfa að skila inn skýrslu á ákveðnu lokaskýrsluformi og senda til þjónustumiðstöðvar UMFÍ á netfangið umfi@umfi.is.
Umsóknarfrestir eru tveir á ári. Fyrri umsóknarfrestur er til 1. maí og sá seinni til 1. nóvember.
Úthlutanir úr sjóðnum
-
Fyrri umsóknarfrestur
Alls bárust 81 umsóknir. Styrktar voru 56 umsóknir. Heildarúthlutun er 6.608.590 kr.
Maí 2023. -
Fyrri umsóknarfrestur
Alls bárust 61 umsókn. Styrktar voru 58 umsóknir. Heildarúthlutun er 10,8 m. kr.
Maí 2022
Seinni umsóknarfresturAlls bárust 129 umsóknir. Styrktar voru 105 umsóknir. Heildarúthlutun er 14,2 m. kr.
Desember 2022. -
Fyrri umsóknarfrestur
Alls bárust 119 umsóknir. Styrktar voru 82 umsóknir. Heildarúthlutun er 9,5 m. kr.
Seinni umsóknarfrestur
Alls bárust 160 umsóknir. Styrktar voru 108 umsóknir. Heildarúthlutun er 10,1 m. kr.
Nóvember 2021 -
.....
....
....
....
....
....
Heildarúthlutanir
Árið 2022
190
25.000.000 kr.
Árið 2021
271
19.590.825 kr.
Árið 2020
272
20.238.788 kr.