Fara á efnissvæði

Svæðisstöðvar

Svæðisstöðvar íþróttahreyfingarinnar

UMFÍ og ÍSÍ hafa komið á fót átta svæðisstöðvum með stuðningi frá mennta- og barnamálaráðuneytinu. Samtökin hafa undirritað samning um eflingu íþróttastarfs á landsvísu með því að koma á fót svæðisstöðvum og hvatasjóði. Svæðisstöðvunum er ætlað að styðja við íþróttahéruð landsins við innleiðingu á stefnu íþróttahreyfingarinnar og ríkisins í íþróttamálum auk þess að auka þátttöku barna og ungmenna í íþróttastarfi með sérstaka áherslu á þátttöku fatlaðra barna, barna af tekjulægri heimilum og barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn. Tillögur um stofnun svæðisstöðvanna voru samþykktar á þingi ÍSÍ vorið 2023 og á þingi UMFÍ haustið 2023.

Verkefnastjóri

Hanna Carla Jóhannsdóttir stýrir innleiðingu og samræmingu á svæðisstöðvunum. Hanna Carla er íþróttafræðingur að mennt og með meistaragráðu í forystu og stjórnun.

Hanna Carla hefur aðsetur í þjónustumiðstöð UMFÍ. Netfang hannacarla@siu.is 

Markmið svæðisstöðva

Hlutverk svæðisstöðvanna er að þjónusta íþróttahéruðin í nærumhverfi sínu með samræmdum hætti. Horft er til þess að sterkari íþróttahéruð og svæðisstöðvar um allt land auki skilvirkni innan íþróttahreyfingarinnar og geri þeim kleift að takast á við núverandi og fyrirséð verkefni. Styrkja stefnumótandi vinnu og aðgerðir á landsvísu og stuðla þannig að farsæld barna og annarra sem nýta þjónustu hreyfingarinnar. 

Framtíðarsýn

Framtíðarsýn með fyrirkomulagi svæðisstöðvanna er að fyrirkomulagið skili sér í betri nýtingu á mannauði. Stuðningur við einstaka íþróttafélög verði meiri og þar af leiðandi verði þjónusta við iðkendur betri. Jafnframt er það framtíðarsýn að sem flestir hafi tækifæri til að stunda íþróttir á því sviði sem þeir kjósa, hvort heldur til ánægju, heilsubótar eða með afreksárangri að markmiði.