Allir snúa bökum saman í íþróttum
„Það var ótrúlegt að upplifa allan þennan kærleika og samtakamátt þar sem allir lögðust á eitt,“ segir Bjarni Helgason, stjórnarmaður Skautafélags Reykjavíkur (SR). Hann var á meðal skipuleggjenda minningaleiks Skautafélags Reykjavíkur og Fjölnis í 19. leik Toppdeildar karla. Leikurinn var til heiðurs Patreki Frey Sveinssyni, U18 leikmanni Skautafélagsins Reykjavíkur, sem lést á Miklubraut í Reykjavík í bílslysi 5. febrúar síðastliðinn. Patrekur var aðeins 17 ára.
Leikurinn átti upphaflega að vera í Egilshöll. Stjórnir félaganna ákváðu í sameiningu að færa leikinn í Skautahöllina í Laugardal og spila leikinn til heiðurs Patreki, sem kallaður var Patti.
Hann hafði reyndar spilað með báðum liðum, var uppalinn hjá Fjölni en hafði fært sig yfir til Skautafélags Reykjavíkur.
Afrakstur af miðasölu, kökubasar og veitingasölu runnu óskipt til fjölskyldu Patreks.
Bæði liðin hituðu upp fyrir leikinn í vestum merktum nafni og númeri Patta. Fyrir leikinn var minningarstund með formönnum beggja skautafélaga og séra Benedikt Sigurðssyni. Á milli fyrsta og annars leikhluta flutti tónlistarmaðurinn Hreimur Örn Heimisson lagið Vor í Vaglaskógi auk þess sem farið var í pekkjakast.
Bjarni segir hugmyndina um minningaleik hafa komið fljótt upp og hafi hann fundið fyrir ótrúlegum samhug í fólki.
„Bjartsýnustu menn í skipulagshópnum sögðu að við ættum að vera við öllu búin. Ég hélt að við fengjum kannski um 600 áhorfendur, sem er álíka mikið og í stærstu leikjum, en við sáum fljótt að andlát Patta snerti við mörgum. Hokkísamfélagið er lítið og náið og við fengum viðbrögð víða að,“ segir hann.
Allir miðar á leikinn seldust upp í forsölu og var raunin að um tvöfalt fleiri sóttu leikinn en stærstu hokkíviðburði.
„Viðburðurinn sýnir mátt íþróttanna. Stemningin kristallast í íþróttum þar sem allir eru tilbúnir til að snúa bökum saman þegar á þarf að halda,“ segir Bjarni hjá SR.
Kvennalið Skautafélags Reykjavíkur endurtekur leikinn á föstudag þegar leikið verður á móti Skautafélagi Akureyrar (SA) og má þá búast við álíka stemningu og samhug. Leikurinn hefst klukkan 19:45.
Hér að neðan má sjá nokkrar myndir úr leiknum.