Annað tölublað Skinfaxa 2018 komið út
Nýjasta tölublað Skinfaxa, tímarits UMFÍ, er komið út. Blaðið er í dreifingu til áskrifenda og sambandsaðila UMFÍ um allt land. Forsíðu blaðsins prýðir Róbert Khorchai, frjálsíþróttamaður úr ungmennafélaginu Þór í Þorlákshöfn. Unglingalandsmót UMFÍ verður einmitt haldið þar um næstu verslunarmannahelgi. Róbert var jafnframt einn af þeim sem sátu fyrir í umfangsmikilli myndatöku sem UMFÍ stóð fyrir í aðdraganda kynningar á Landsmótinu. Fleiri myndir af Róbert má sjá hér að neðan.
Blaðið er eins og ætíð stútfullt af gagnlegu efni.
Á meðal efnis í blaðinu:
- Stóru félögin á svæði HSÞ skilyrða sig til að fara eftir siðareglum og kvitta upp á að óska eftir sakavottorðum fyrir þjálfara og annað starfsfólk.
- Þrír í ungmennaráði UMFÍ svara spurningum.
- Hvaða breytingar kallar ungt fólk eftir í starfi íþrótta- og ungmennafélaga?
- Tómas dreif sig í tónlistarlýðháskóla í Danmörku.
- Samfélagsleg áhrif Unglingalandsmóta UMFÍ á bæjarfélög.
- Landsmótið.
- Unglingalandsmót UMFÍ í Þorlákshöfn.
- Stúkan í Grenivík sameinar bæjarbúa.
- Guðríður Aadnegard segir það skipta máli að hitta fólk.
- Grunnskólamót UMSK í blaki.
- Blakarar drífa sig í ringó.
- Falur og fjölskylda hafa mætt á Unglingalandsmót 12 ár í röð.
- Mamman sem er fyrirmynd í hreyfingu.
- Samvinnan er lykillinn að endurreisn HSH.
Hægt verður að nálgast eintak af blaðinu í sundlaugum um allt land og á öðrum stöðum sem fólk á hreyfingu sækir.
Skinfaxi er málgagn UMFÍ sem kemur út fjórum sinnum ári. Blaðið hefur komið óslitið út frá árinu 1909. Efnistökin eru fjölbreytt og áhugaverð, stútfull af efni úr hreyfingunni.
Skinfaxi er líka til á rafrænu formi. Hér er hægt að lesa blaðið: Skinfaxi