Fjöldi greina á Landsmóti UMFÍ 50+
Fjöldi íþróttagreina verður á dagskrá Landsmóts UMFÍ 50+ þegar það verður í fyrsta sinn haldið á sambandssvæði UMSE í júní 2026. „Það er nóg að gera hjá okkur, við erum búin að velja stóru greinarnar og stemningin fyrir mótinu er mjög góð,“ segir Valgerður Reykjalín, sem var ráðin framkvæmdastjóri Ungmennasambands Eyjafjarðar (UMSE) í haust.
Landsmót UMFÍ 50+ verður haldið í Hrafnagilshverfi síðustu helgina í júní á næsta ári. Þetta verður í 14. sinn sem mótið er haldið síðan það fyrsta fór fram á Hvammstanga árið 2011 og í fyrsta sinn sem það er haldið í Eyjafjarðarsveit.
Undirbúningur fyrir Landsmót UMFÍ 50+ fer vel af stað og greinilegt að í Eyjafjarðarsveit verður gott mót. Framkvæmdanefnd mótsins er nær fullskipuð og búið að teikna upp skipulag fjölbreyttra keppnisgreina.
Eins og keppnisdagskráin lítur út núna verður hægt að taka þátt í badmintoni, boccia, bridds, frjálsum íþróttum, golfi, pílu, pokavarpi, pútti, pönnukökubakstri, ringói, skák, skotfimi, stígvélakasti, sundi og hjólreiðum. Stefnt er að því að hafa opnar greinar á borð við frisbígolf, utanvegahlaup og brennibolta, auk sýningar í hestaíþróttum.
Flutti aftur heim
Valgerður tók við starfi framkvæmdastjóra UMSE í haust. Sambandið hafði þá verið án framkvæmdastjóra í tæpt ár. Valgerður er menntaður íþróttafræðingur og kennari, sem ólst upp á Dalvík. Maður hennar er Hornfirðingur og hafa þau upp á síðkastið verið búsett þar.
Í fyrrasumar fluttu þau norður á Dalvík. Þar stígur Valgerður sín fyrstu skref í starfi innan íþróttahreyfingarinnar.
Hún segir næg verkefni framundan enda ýmsir stórir viðburður á dagatalinu undir merkjum UMSE og aðildarfélaga. Þar á meðal er Þorvaldsdalskokkið, sem er eitt elsta skipulagða óbyggðahlaup hér á landi og verður haldið í 33. sinn í júlí á nýju ári og fótboltamót Ungmennafélagsins Samherja, sem haldið er í Eyjafjarðarsveit að hausti. Til viðbótar er stefnt að því að Allir með, samstarfsverkefni Íþróttasambands fatlaðra, ÍSÍ og UMFÍ, verði á Dalvík og mögulega á fleiri stöðum á sambandssvæði UMSE.
Landsmót UMFÍ 50+ í hnotskurn
- Á 46. sambandsþingi UMFÍ sem haldið var í Reykjanesbæ árið 2009 var stjórn UMFÍ falið að skipa nefnd til að útfæra starf eldri ungmennafélaga til framtíðar.
- Í nefndinni voru voru: Anna R. Möller, Flemming Jessen, Þórey S. Guðmundsdóttir, Hjörtur Þórarinsson og Sigurður Guðmundsson sem var starfsmaður nefndarinnar.
- Hugmyndir voru kynntar á samráðsfundi UMFÍ ári síðar og var ákveðið í febrúar árið 2011 að efna til Landsmóts UMFÍ 50+.
- Fyrsta mótið fór fram dagana 24.–26. júní 2011 á Hvammstanga.
- Síðasta Landsmót UMFÍ 50+ var haldið á Ólafsfirði og Siglufirði í júní 2025. Valgerður Reykjalín ásamt Þorgerði Guðmundsdóttur, formanni UMSE. bótar er stefnt að því að Allir með, samstarfsverkefni Íþróttasambands fatlaðra, ÍSÍ og UMFÍ, verði á Dalvík og mögulega á fleiri stöðum á sambandssvæði UMSE. Þú getur lesið meira um mótið á umfi.is eða skannað QR-kóðann.
- Markmið mótsins hefur ávallt verið að skapa vettvang fyrir fólk sem verður 50 ára sama ár og mótið er haldið - og eldra fólk - til að hittast og njóta þess að keppa í fjölda íþróttagreina.
- Þátttakendur þurfa ekki að vera skráðir í íþróttafélag, allir geta tekið þátt og á sínum forsendum.
Komdu og vertu með!
Allar upplýsingar á svæði mótsins á umfi.is:
Greinin er í Skinfaxa, tímariti UMFÍ.