23. júlí 2018
Foreldrarnir til fyrirmyndar á Unglingalandsmótum UMFÍ
Foreldrar þátttakenda á Unglingalandsmótinu hafa verið virkir í gegnum tíðina og margir tilbúnir til að leggja hönd á plóg til að gera gott mót enn betra.
Hér að ofan má sjá tvo feður sem voru á síðasta Unglingalandsmóti UMFÍ á Egilsstöðum og dæmdu báðir í knattspyrnu á mótinu. Þetta eru þeir Ívar Ingimarsson og Guðgeir Sigurjónsson, leikmaður Hattar á Egilsstöðum. Ívar, sem er hægra megin á myndinni, er fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu og var atvinnumaður lengi með Reading í enska boltanum.