Fyrsta opnun umsókna í Hvatasjóð 2026
Opið er fyrir umsóknir í Hvatasjóð íþróttahreyfingarinnar og verður hægt að senda inn umsóknir í sjóðinn til 15. mars næstkomandi. Þetta er fyrsti umsóknarfrestur ársins 2026.
Sjóðurinn tók til starfa á síðasta ári. Þá hlutu 154 verkefni styrk upp á samtals 86,6 milljónir króna.
Hvatasjóðurinn styrkir verkefni sem stuðla að útbreiðslu íþróttastarfs og þátttöku allra barna. Sérstök áhersla er á verkefni sem tengjast börnum með fatlanir, börnum frá tekjulægri heimilum og börnum með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn.
Í Hvatasjóð íþróttahreyfingarinnar geta eftirtaldir aðilar innan ÍSÍ og UMFÍ sótt um:
- Íþróttahéruð.
- Íþróttafélög og/eða deildir þeirra.
- Sérsambönd í samstarfi við íþróttahéruð, félög og/eða deildir félaga.
Hvatasjóður íþróttahreyfingarinnar er sjóður á vegum ÍSÍ og UMFÍ með stuðningi Mennta- og barnamálaráðuneytis.
Hvað styrkir sjóðurinn?
Hvatasjóðurinn veitir styrki til verkefna sem:
- Auka útbreiðslu og þátttöku barna í íþróttum.
- Efla þátttöku barna með fötlun.
- Efla þátttöku barna frá tekjulægri heimilum.
- Efla þátttöku barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.
Hvað á umsóknin innihalda?
Í umsókn skal meðal annars tilgreina:
- Lýsingu á verkefninu og markmiðum þess.
- Rökstuðning fyrir áhrifum verkefnisins á viðkomandi svæði.
- Tíma- og verkáætlun.
- Fjárhagsáætlun verkefnisins.
Stuðlaðu að aukinni þátttöku allra barna í íþróttum – sæktu um í dag!
Hér má finna úthlutunarreglur sjóðsins!