Góðar undirtektir á Norðurlandi vestra
Mætingin var mjög góð og undirtektirnar eftir því á stefnumótunarfundi ÍSÍ og UMFÍ á Norðurlandi vestra, sem fram fór á Sauðárkróki í gær. Andri Stefánsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ, stýrði fundinum og leiddi þátttakendur frá öllum íþróttahéruðum á landssvæðinu í gegnum vinnuna.
Samhliða stefnumótunarfundunum standa ÍSÍ og UMFÍ ásamt íþróttahéruðunum á hverju svæði og Ungmennaráði UMFÍ fyrir viðburðinum Raddir ungs fólks. Þátttakendur þar eru á aldrinum 15 - 25 ára, sem hafa áhuga á íþróttum, hafa æft íþróttir, hafa hætt að æfa íþróttir og eruð enn að æfa íþróttir. Á fundinum er m.a. velt upp ýmsum þáttum sem snúa að brottfalli úr íþróttum.
Áherslan í sameiginlegri stefnumótunarvinnunni er aðgengi að íþróttastarfi, samfélagsleg þátttaka og fleiri þættir á borð við grasrótarstarf, sem var rætt í þaula á Sauðárkróki.
Á stefnumótunarfundinum var rætt um mikilvægi þess að aðlaga starfsemi íþróttafélaga og íþróttastarf að mismunandi hópum og umhverfi. Áhersla er lögð á hlutverk og samvinnu frekar en að horfa á einstakar hindranir eða persónur.
Stefnumótunarvinna íþróttahreyfingarinnar hófst formlega á formannafundi ÍSÍ í nóvember í fyrra. Byrjað var á fundum á höfuðborgarsvæðinu. Nú hafa verið haldnir fundir á Austurland og Norðurlandi í vikunni með það fyrir augum að heyra fjölbreyttar raddir í hreyfingunni.
Fram kom í máli Andra að núverandi fasi stendur yfir fram í apríl og lýkur honum með víðtækri samráðsvinnu. Næstu fasar einkennast af frekari úrvinnslu og gagnaöflun fram á haust.
Hér má sjá upplýsingar um alla fundina.
Smelltu hér til að skrá þig á fund
Hér má sjá nokkrar myndir frá fundinum. Fleiri myndir má sjá á Facebook-síðu viðburðarins og myndasíðu UMFÍ á Facebook.