Halldór og Pálmi sæmdir starfsmerki UMFÍ
„Þingið var mjög hefðbundið og fór vel,“ segir Jóhanna Sigrún Árnadóttir, formaður Ungmennasambands Dalamanna – og Norður-Breiðfirðinga (UDN). Þing sambands fór fram í síðustu viku. Álfheiður Sverrisdóttir, svæðisfulltrúi íþróttahéraðanna, var fulltrúi UMFÍ á þinginu og heiðraði þá Halldór Þórðarson og Pálma Jóhannsson með starfsmerki UMFÍ.
Fulltrúar fimm aðildarfélaga UDN mættu á þingið
Þingforseti var Guðlaug Kristinsdóttir.
Fáar tillögur lágu fyrir þinginu og voru þær samþykktar samhljóða. Þar á meðal var tillaga um að ráða framkvæmdastjóra UDN í 20% sstarf í prufu til eins árs.
Guðrún Blöndal og Sindri Geir Sigurðarson gáfu ekki kost á sér áfram í stjórn UDN og í þeirra stað komu Ragnheiður Helga Bæringsdóttir og Alexander Örn Skjaldarson. Að öðru leyti var stjórnin óbreytt.
Gestir þingsins voru Hafsteinn Pálsson framkvæmdastjórn ÍSÍ, Álfheiður Sverrisdóttir og Emilía Halldórsdóttir, svæðisfulltrúar íþróttahéraðanna á Vesturlandi, auk Ísaks Sigfússonar, lýðheilsufulltrúa Dalabyggðar. Hafsteinn flutti kveðjur og þakkir ÍSÍ og veitti þeim Erunu Hjaltadóttur og Gunnlaugu Arngrímsdóttur Silfurmerki ÍSÍ.
Íþróttamanneskja UDN 2025 er Laufey Fríða Þórarinsdóttir
Hvatningarverðlaun UDN hlutu þau Ingibjörg Jóhannsdóttir, Guðmundur Kári Þorgrímsson og fræðslunefnd Hestamannafélagsins Glaðs.
Drifskaftið eru hvatningarverðlaun ungmenna 14 -16 ára, sem þau hljóta fyrir að sinna íþrótt sinni vel, eru jákvæð og fyrirmyndir. Drifskaftið að þessu sinni hlutu Lauga Björg Eggertsdóttir og Aðalheiður Rós Unnsteinsdóttir og báðar eru í og æfa hjá Hestamannafélaginu Glað.
Hér að neðan má sjá myndir frá afhendingu viðurkenninga á þingi UDN.