Fara á efnissvæði
29. september 2020

HSK hvetur aðildarfélög til að hafa auga með brottfalli barna

Stjórn Héraðssambandsins Skarphéðins (HSK) hefur sent aðildarfélögum sambandsins bókun og skorar á þau að huga vel að börnum og unglingum á þessum óvissutímum Covid-19 faraldurins.  Í bókuninni segir að ljóst sé að faraldurinn geti haft veruleg áhrif á allt íþrótta-og tómstundastarf félaganna, ekki síst nú í haust þegar skóla- og vetrarstarf félaganna er að hefjast.

„Það er ljóst að atvinnuleysi er að aukast í landinu og þá er hætta á að minna sé á milli handanna hjá mörgum fjölskyldum. Nauðsynlegt er að reyna að koma í veg fyrir að það hafi áhrif á að börn og unglingar geti ekki  stundað íþróttir og annað tómstunda starf.  Hvetur stjórn HSK félögin til að taka samtal  við sveitarstjórnir, hver á sínu svæði og skipuleggja markvisst eftirlit með þessu,“ segir í bókuninni.

Þá er tekið fram í bókuninni að ríkisstjórnin hafi samþykkt að veita 600 milljónum til sveitarfélaga til að aðstoða tekjulága foreldra, til að koma í veg fyrir brottfall barna og unglinga  úr íþróttum og tómstundum.  Regluverk í kringum þetta sé í smiðum.

En á meðan þess er beðið megi ekki missa sjónar á þessu markmiði að allir geti stundað íþróttir og tómstundir óháð efnahag.

HSK er sambandsaðili UMFÍ og er innan þess íþrótta- og ungmennafélög í Árnessýslu og Rangárvallasýslu. Á meðal félaganna er Ungmennafélag Selfoss á Selfossi, Hamar í Hveragerði, Þór í Þorlákshöfn og gífurlega mörg önnur félög.

 

Bókun stjórnar HSK á vefsíðu HSK