Fara á efnissvæði
13. apríl 2026

ÍRB og ÍS skoða kosti og galla sameiningar

Stjórnir Íþróttabandalags Reykjanesbæjar (ÍRB) og Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS) eru farin að skoða kosti og galla sameiningar íþróttahéraðanna. Svæðisfulltrúar íþróttahéraðanna vinna greininguna og munu skila skýrslu um niðurstöðuna í febrúar á næsta ári. 

Fram kemur í tilkynningu frá íþróttabandalögunum sem send aðildarfélögum þeirra að í febrúar á þessu ári hafi verið haldinn sameiginlegur fundur íþróttahéraðanna. Þar var svæðisfulltrúum á Suðurnesjum falið að vinna heildstæða greiningu á kostum og göllum sameiningar ÍRB og ÍS. 

Markmið greiningarinnar er að skoða hvernig sameining íþróttahéraða á Suðurnesjum gæti litið út með tilliti til aðkomu sveitarfélaga, áhrifum á aðildarfélög innan raða ÍRB og ÍS og úthlutun fjármagns frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélagi Íslands (UMFÍ). 

Tímarammi greiningarvinnu er áætlaður eitt ár frá áðurnefndum fundi í febrúar. Svæðisfulltrúar eiga samkvæmt niðurstöðum fundarins að skila af sér framvinduskýrslu innan hálfs árs til stjórna ÍRB og ÍS, sem í kjölfarið munu upplýsa sín aðildarfélög um stöðu greiningarinnar. 

Svæðisfulltrúunum er svo gert að skila af sér skýrslu með niðurstöðum greiningar að einu ári liðnu, sem leggja skal fyrir stjórnir ÍRB og ÍS. Í framhaldi verða niðurstöður greiningarinnar kynntar aðildarfélögum beggja íþróttahéraða. 

Undir tilkynninguna skrifa þeir Rúnar V. Arnarson, formaður ÍRB, og Gunnar Jóhannesson, formaður ÍS. 

 

ÍS varð sambandsaðili UMFÍ undir lok árs 2023 og ÍRB um mitt ár 2024. Sambandsaðilar UMFÍ eru nú 26 talsins sem skiptast í 25 íþróttahéruð og eitt ungmennafélag með beina aðild. Alls eru um 450 félög innan UMFÍ, þar á meðal öll íþróttafélög á Íslandi. 

Á myndinni hér að ofan má sjá káta þátttakendur Keflavíkur, íþrótta- og ungmennafélags, sem er aðildarfélag Íþróttabandalags Reykjanesbæjar. 

Meira um bandalögin

Innan íþróttahéraðanna beggja er íþróttalíf á Suðurnesjum. 

Íþróttabandalag Suðurnesja  var stofnað 1. desember árið 1947 og eru innan þess félög í Grindavík, Suðurnesjabæ og og Vogum á Vatnsleysuströnd. 

Íþróttabandalag Reykjanesbæjar var stofnað í maí árið 1996 og fagnar því 30 ára afmæli á þessu ári. Innan þess eru félög í Reykjanesbæ og Njarðvík. Bandalagið réð á dögunum framkvæmdastjóra til starfa og er hann sá fyrsti í sögu þess.