Fara á efnissvæði
01. apríl 2026

Lísa sæmd Gullmerki UMFÍ

Um 120 manns mættu á héraðsþing Héraðssambandsins Skarphéðins (HSK) fimmtudaginn 26. mars. Þetta var 104.  Þing HSK og fimmta skiptið sem það var haldið í Félagsheimilinu Borg í Grímsnesi. Eins og fram kemur í umfjöllun Engilberts Olgeirssonar, framkvæmdastjóra HSK, var dagurinn misviðrasamur, en sem betur fer gekk lægðin fljótt yfir sambandssvæðið og allar veðurviðvaranir féllu úr gildi eftir hádegi. Ekkert var því til fyrirstöðu að halda þingið.

Tekið er fram að líkt og undanfarin ár voru þinggögn, önnur en ársskýrsla HSK, ekki á borðum þingfulltrúa. Þau voru öll aðgengileg á heimasíðu HSK á vefslóðinni www.hsk.is

 

Breytingar á stjórn

Þingið hófst með ávarpi Guðríðar Aadnegard formanns HSK og má lesa það í heild sinni á www.hsk.is, undir liðnum aðsendar greinar. Þá voru ársreikningar lagðir fram og samþykktir. Stjórn HSK lagði fram 13 tillögur á þinginu og voru þær allar samþykktar. 

Breyting varð á stjórn sambandsins, en Jón Þröstur Jóhannesson meðstjórnandi gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Guðrún Ása Kristleifsdóttir, sem hefur átt sæti í varastjórn frá 2024, var kosin í stjórn. Ágústa Kristín Hjaltadóttir fyrrverandi formaður Íþróttafélagsins Garps kom ný inn í varastjórn.

Að öðru leyti er stjórn HSK óbreytt og Guðríður formaður.

 

Svanur er öðlingur ársins

Val á íþróttakonu og íþróttakarli HSK 2025 var kunngjört á þinginu. Golfarinn Heiðrún Anna Hlynsdóttir og motocrosskappinn Eric Máni Guðmundsson voru valin úr hópi þeirra sem tilnefndir voru úr fjölmörgum greinum sem stundaðar eru hjá aðildarfélögum HSK.

Hvatningarverðlaun HSK voru veitt í annað sinn. Það var Ungmennafélag Biskupstungna sem hlaut Hvatningarverðlaunin fyrir fyrir öflugt félagsstarf og nýbreytni.

HSK heiðraði tvo einstaklinga á héraðsþinginu. Svanur Ingvarsson á Selfossi var valinn öðlingur ársins og Guðmundur Karl Sigurdórsson fjölmiðlamaður og fyrrverandi formaður Knattspyrnufélags Árborgar var sæmdur silfurmerki HSK.  

UMFÍ heiðraði fjóra einstaklinga úr Grímsnes- og Grafningshreppi. Lísa Thomsen var sæmd gullmerki UMFÍ og Guðrún Ása Kristleifsdóttir, Kjartan Helgason og Hörður Óli Guðmundsson voru sæmd starfsmerki UMFÍ.

Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ, var gestur þingsins, flutti ávarp og afhenti starfsmerkin. Á myndinni hér að ofan má sjá Jóhann með þeim Lisu og Guðrúnu Ásu.

ÍSÍ heiðraði þau Anný Ingimarsdóttir ritara stjórnar HSK og Gylfa Þorkelsson, fyrrverandi formann Körfuknattleiksfélags Selfoss, með gullmerki ÍSÍ.

 

Hér að neðan má sjá nokkrar myndir af þinginu og þeim sem voru heiðraðir og hlutu viðurkenningar.