Fara á efnissvæði
22. september 2020

Netnámskeiðið Verndum þau 1. október næstkomandi

Mikilvægt er fyrir alla sem starfa með börnum og ungmennum að vera meðvituð um skyldur sínar og ábyrgð. Æskulýðsvettvangurinn býður upp á námskeiðið Verndum þau á netinu þar sem kennt er hvernig bregðast á við grun um ofbeldi og vanrækslu gegn börnum og ungmennum.

Námskeiðið verður haldið 1. október 2020.

Mikilvægt er fyrir alla sem starfa með börnum og ungmennum að vera meðvituð um skyldur sínar og ábyrgð.

Í því felst m.a. að geta lesið í vísbendingar um að vanræksla eða ofbeldi, hvort sem það er andlegt, líkamlegt eða kynferðislegt, eigi sér stað gegn börnum eða ungmennum. Mikilvægt er að vita hvernig bregðast á við ef slík mál koma upp.

Æskulýðsvettvangurinn er samstarfsvettvangur Bandalags íslenskra skáta, KFUM og KFUK á Íslandi, Slysavarnafélagsins Landsbjargar og UMFÍ.

 

Verndum þau í 10 ár

Æskulýðsvettvangurinn hefur frá árinu 2010 staðið fyrir námskeiðinu Verndum þau fyrir þau félagasamtök sem saman mynda vettvanginn og aðra áhugasama. Námskeiðið er byggt á efni samnefndrar bókar og fjallar um hvernig bregðast eigi við grun um ofbeldi og vanrækslu gegn börnum og ungmennum.

Á námskeiðinu er m.a farið yfir:

Höfundar bókarinnar, Ólöf Ásta Farestveit, uppeldis- og afbrotafræðingur og Þorbjörg Sveinsdóttir, sálfræðingur, sjá um kennslu á námskeiðinu. Báðar starfa þær í Barnahúsi og hafa mikla reynslu af barnaverndarmálum.

Æskulýðsvettvangurinn hefur ákveðið, í ljósi stöðunnar í samfélaginu, að bjóða upp á námskeiðið í gegnum netið þessa önnina. Námskeiðið verður haldið þann 1. október 2020 og hefst kl. 17:00. Gert er ráð fyrir því að námskeiðið taki rúma tvær klukkustundir.

Mikilvægt er að þátttakendur á námskeiðinu skrái sig eigi síðar en 30. september n.k.

Takmarkað magn af sætum er í boði. Þátttakendur fá senda slóð á námskeiðið í tölvupósti sama dag og námskeiðið fer fram.

Vinsamlegast athugið að einungis verður um eitt námskeið að ræða haustið 2020.

Skráning: https://forms.gle/pX5XbVSmDewpVE6RA

Meira um Æskulýðsvettvanginn