Fara á efnissvæði
25. október 2024

Nýstárlegar vinnustofur í blaki

Blaksambandið stendur fyrir vinnustofu fyrir kennara, íþróttakennara, þjálfara og öll sem hafa áhuga á að efla þjálfun ungs fólks í blaki. Vinnustofan er liður í Skólablakinu, verkefni sem Blaksambandið hefur staðið að ásamt ÍSÍ, UMFÍ, Evrópska blaksambandinu (CEV) og fleirum víða um land. Vinnustofan er styrkt af Erasmus+ (styrkjaáætlun Evrópusambandsins) og er UMFÍ þátttakandi í umsókninni.

Vinnustofurnar eru tvær, standa yfir í hálfan dag og geta þátttakendur valið hvora stofuna þeir taka. Í boði er að velja vinnustofu föstudaginn 29. nóvember eða laugardaginn 30. nóvember. Aðeins kostar 1.000 krónur að sitja námskeiðið.

 

Splunkunýtt kennsluefni

Vinnustofurnar byggja á splunkunýju námsefni fyrir 6 – 14 ára börn, sem Evrópska blaksambandið hefur þróað og unnið að síðastliðin tvö ár. Námsefnið samanstendur af handbók, myndböndum og rafrænu kennsluefni, sem veitir þjálfurum og kennurum aðgang að áhugaverðu fagefni sem er hæfir hverju aldursbili fyrir sig.

Vinnustofurnar samanstanda af fyrirlestrum og verklegri kennslu. Farið verður yfir sama kennsluefnið á föstudeginum og laugardeginum. 

Markmiðið með vinnustofunum og nýja kennsluefninu er að sameina hefðbundnar kennsluaðferðir við nýstárlegar leiðir til að bæta bæði þekkingu og framkvæmd í blakkennslu.  Vinnustofan miðlar nýrri nálgun á blakkennslu og leggur bæði áherslu á fræðilega og hagnýta nálgun með það að markmiði að auka árangu barna í þjálfun.

 

Þýskur snillingur

Námsefnið var gert undir faglegri leiðsögn Jimmy Czimek, fyrirlesara við þýska íþróttaháskólann í Köld ( DSHS Köln ). Jimmy Czimek er þekktur  í blakheiminum fyrir ritstörf sín, hlutverk sem yfirmaður þjálfaranámskeiða hjá þýska blaksambandinu  og starf sitt sem prófessor við DSHS Köln. Hann hefur mikla reynslu sem þjálfari sem sameinar fræðilega þekkingu og  hagnýtar aðferðir í kennslu sinni.

Þátttakendur eru hvattir til að mæta í íþróttafötum og  taka einnig þátt í verklegum hluta námskeiðsins.

Vinnustofan verður viðurkennd sem hálfs dags atburður fyrir BLI 1 leyfið, að því gefnu að viðkomandi hafi lokið nauðsynlegu netnámskeiði og móttekið skírteini. Skráðir nemendur fá tækifæri til að ljúka BLI 1 með því að klára bæði netnámskeiðið og verklega hlutann á sumarnámskeiðinu árið 2025.

 

Nánari upplýsingar um verkefnið:

Skráning í vinnustofuna er á Abler: 

Skoða vinnustofurnar og skrá þátttöku