Og heiðrun hlýtur...
Nú styttist í þing og ársfundi sambandsaðila UMFÍ. Er ætlunin að heiðra sjálfboðaliða á þingi? UMFÍ hvetur sambandsaðila til að senda inn tillögur að heiðrunum fyrir þing og ársfundi um allt land.
Á vefsíðu UMFÍ geta sambandsaðilar UMFÍ nálgast eyðublað til að fylla út ef mæla á með eða tilnefna fólk til starfsmerkis UMFÍ eða aðrar heiðranir.
Hvenær er þingið?
Auk starfsmerkja og ýmissa heiðursviðurkenninga þá er gott að upplýsa með fyrirvara um dagsetningu þinga og aðalfunda sambandsaðila. Við höfum þegar fengið dag- og tímasetningar nokkurra sambandsaðila og hvetjum sem flesta til að senda okkur upplýsingar.
Það væri því gott að senda upplýsingar um það á netfangið umfi@umfi.is.
Á myndinni hér að ofan má sjá þau Bjarna, Gunnhildi, Jóhönnu Sigrúnu og Jónu þegar þau tóku við Hvatningarverðlaunum á sambandsþingi UMFÍ í fyrra.