Fara á efnissvæði
13. nóvember 2020

Olga í Gerplu dansaði af kæti yfir afléttingu íþróttabanns

„Ég var svo rosalega glöð þegar ég heyrði fréttirnar í hádeginu að ég tók sigurhringinn,“ segir Olga Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri Gerplu í Kópavogi. Hún var stödd á veitingastað í Reykjavík í hádeginu í dag þegar hún heyrði í fréttum að heilbrigðisráðherra hefði fallist á tillögur sóttvarnalæknis, slakanir á samkomutakmörkunum væru í kortunum og gætu börn á leik- og grunnskólaaldri farið að æfa íþróttir á nýjan leik á miðvikudag í næstu viku.

Æfingar hafa legið niðri á höfuðborgarsvæðinu síðan í byrjun október en í skemmri tíma um allt land.

„Mér lýst mjög vel á tilslakanir. Þetta lítur mjög vel út fyrir 6-15 ára sem geta farið af stað. Enn eru samt hömlur á þeim ungu því foreldrar þeirra geta ekki fylgt þeim í íþróttir. Þeir eldri eru heldur ekki jafn heppin. En við þurfum að sjá hvað felst í reglugerðinni og fögnum öllum skrefum,“ segir Olga og bætir við að stjórnendur íþróttafélaga hafi mánudag og þriðjudag til að undirbúa starfið framundan. Mikilvægt sé að reglugerðin komi tímanlega og verði skýr.  

Olga segir að hún hafi tekið íþróttabannið mjög inná sig undanfarnar vikur og því hafi gleðiviðbrögðin verið frá hjartanu.

„Andrenalínið rauk af stað. Ég var eins og belja að vori! Þjóninn á veitingastaðnum hrökk reyndar í kút og sagði bara: Hello, dancing queen! En ég gat ekki sagt annað en sorry!“ segir Olga.

 

Sjá: Börn og ungmenni fá að stunda íþróttir á nýjan leik í næstu viku