Páll hlaut Hvatningarverðlaun UMSK
Mikilvægt er að skrá iðkendur íþróttafélaga rétt í skráningarkerfi íþróttahreyfingarinnar. Með því móti fæst skýrari og betri mynd af starfsemi þeirra og iðkendum. Bætt skráning hjálpar líka til við að greina upplýsingarnar betur og ná utan um ýmsar áskoranir í starfinu, að mati Auðar Ingu Þorsteinsdóttur, framkvæmdastjóra UMFÍ. Hún hélt ávarp á ársþingi Ungmennasambands Kjalarnesþings (UMSK), sem fram fór í Hlégarði í Mosfellsbæ á fimmtudag.
Þingið var vel sótt og einkenndist af samstöðu. Auður var gestur UMFÍ á þinginu ásamt Skúla Braga Geirdal, varaformanns UMFÍ.
Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, hélt sömuleiðis kröftugt ávarp og lagði í máli sínu áherslu á mikilvægi starfs sjálfboðaliða og samstöðu innan íþróttahreyfingarinnar, sem meðal annars birtist í sameiginlegri stefnumótun ÍSÍ og UMFÍ.
Hann benti jafnframt á að efla þurfi stuðning stjórnvalda og styrkja umgjörð íþróttastarfs um land allt:
„Við þurfum að þétta raðirnar sem hreyfing til að fá stjórnvöld í lið með okkur,“ sagði hann og kom jafnframt inn á ráðgjafahóp sem hafi það hlutverk að skýra stefnu í til að mynda skattamálum og launamálum íþróttafélaga.
Vonir standa til að ráðherra fari með frumvarp inn í þingið og mæli fyrir skattalögum til handa íþróttahreyfingarinnar.
Fjöldi heiðrana
Töluvert var um viðurkenningar og heiðranir á þingi UMSÍ. Heiðranir voru eftirfarandi:
Hvatningarverðlaun UMSK 2026.
- Páll Líndal (Golfklúbbur Mosfellsbæjar). Páll hefur í nokkru ár staðið fyrir Golfmótinu „Palla Open“ þar sem hann hefur safnað um 16 milljónum króna sem hann hefur látið renna til góðgerðarmála.
Félagsmálaskjöldur UMSK
- Þorsteinn Þorbergsson (Stjarnan).
Íþróttakona UMSK 2025
- Birta Georgsdóttir (Breiðablik)
Íþróttakarl UMSK 2025
- Jón Þór Sigurðsson (skotfimi)
Lið ársins 2025
- Meistaraflokkur kvenna í knattspyrnu hjá Breiðabliki
Heiðursviðurkenningar ÍSÍ
Gullmerki ÍSÍ
- Guðmundur Sigurbergsson, formaður UMSK.
- Jóhann Ingi Jóhannsson (Stjarnan)
Silfurmerki ÍSÍ
- Agnar Már Jónsson (GKG)
- Þorvaldur Þorsteinsson (Oddur)
- Hjalti Árnason (Kraftlyftingafélag Mosfellsbæjar)
- Lúðvík Örn Steinarsson (Stjarnan)
- Hallgrímur Davíð Björnsson (Breiðablik)
Heiðursviðurkenningar UMFÍ
Auður Inga og Skúli Bragi veittu viðurkenningar UMFÍ:
Gullmerki UMFÍ
- Hildur Ýr Arnardóttir (Dansfélagið Hvönn)
- Örvar Möller (Dansfélagið Hvönn)
- Algirdas Slapikas (Íþróttafélagið Stál-Úlfur)
- Eiríkur Mörk Valsson (Breiðablik)
- Guðrún Kristín Einarsdóttir (Afturelding)
Starfsmerki UMFÍ
- Jónas Páll Björnsson (Tennisfélag Kópavogs)
- Magnús Valgeir Gíslason (Breiðablik)
- Teitur Ingi Valmundsson (Afturelding)
- Guðrún Björg Elíasdóttir (Afturelding)
Nýtt félag tekið inn
Fundarstörf gengu greiðlega fyrir sig og helstu tillögur samþykktar samhljóða.
Nýtt félag var tekið inn í UMSK. Það var Íþróttafélagið Hraði og kynnti Pétur Ívarsson starfsemi þess.
Stjórnarkjör fór fram án mótatkvæða og er stjórn UMSK óbreytt frá fyrra ári.
Lárus B. Lárusson, frá Íþróttafélaginu Gróttu og Margrét Dögg Halldórsdóttir, frá Hestamannafélaginu Herði, voru jafnframt endurkjörin í stjórn til tveggja ára.
Ný inn í varastjórn og kosin til eins árs eru: Þorvaldur Þorsteinsson, Golfklúbbnum Oddi, og Sólborg Sumarrós Sigurðardóttir frá Íþróttafélaginu Gerplu.
Þá var Matthildur B. Stefánsdóttir frá Breiðabliki endurkjörin í varastjórn til eins árs.
Hér eru nokkrar myndir frá þinginu.