Fara á efnissvæði
13. febrúar 2026

Ræddu saman um stefnumótun hreyfingarinnar

Gagnlegar samræður áttu sér stað á vinnufundi fulltrúa íþróttafélaga, sveitarfélaga og annarra félagasamtaka og fleiri, sem hittust í vikunni og funduðu um heildstæða stefnumótun fyrir íþróttahreyfinguna.  Vinnan hófst með formlegum hætti á fundi formanna sérsambanda og íþróttahéraða á Akranesi í nóvember í fyrra.

Fulltrúar hópanna sem hittust í vikunni ræddu um afreksmál, grasrótarstarf og samfélagsmál frá ýmsum hliðum. Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, ráðgjafi hjá fyrirtækinu Expectus ráðgjöf, stýrði fundunum. Hún stýrði jafnframt fyrsta sameiginlega fundinum á Akranesi. 

Stefnumótun íþróttahreyfingarinnar er umfangsmikið og margþætt verkefni. Rödd grasrótarinnar er lykilatriði og ræðst árangur stefnumótunarinnar af því hversu vel tekst að tryggja virka þátttöku og opið samtal við fulltrúa allrar hreyfingarinnar, óháð íþróttagreinum, búsetu, markmiðum með iðkun, efnahag, kyni, aldri og öðrum þáttum. Í undirbúningi er fundarboð til allra sambandsaðila innan íþróttahreyfingarinnar í framhaldi af þessum vinnustofum. 

Í stýrihópi stefnumótunarinnar sitja auk fjölda íþróttahéraða og sveitarfélaga fulltrúar tilnefndir af stjórnum ÍSÍ og UMFÍ.

Þau eru:

  • Kári Mímisson, ÍSÍ
  • Willum Þór Þórsson, ÍSÍ
  • Halla Margrét Jónsdóttir, UMFÍ
  • Helgi Sigurður Haraldsson, UMFÍ

Nánari upplýsingar um framvindu stefnumótunarinnar verða kynntar eftir því sem vinnan þróast. Nokkrir einstaklingar hafa nú þegar haft samband, bæði spurt þar spurninga og komið með ábendingar. Við hvetjum fólk til að hafa samband á netfangið umfi@umfi.is.

 

Fleiri myndir frá stefnumótunarfundinum.