Fara á efnissvæði
07. febrúar 2025

Styrkja samstarf á milli landa

Við minnum á að umsóknarfrestur í íþróttahluta Erasmus+ áætlunarinnar rennur út miðvikudaginn 12. febrúar klukkan 10:00. Þarna er um að ræða stuðning við upbbygingu íþróttafélaga í starfi með ungu fólki. Hægt er að sækja um tvenns konar verkefni. 

a) Vettvangsheimsókn / starfspeglun fyrir starfsfólk íþróttafélaga, stjórnarfólk, þjálfara og sjálfboðaliða svo þau geti farið í styttri heimsóknir til annarra íþróttafélaga í Evrópu, kynna sér starfsemi þeirra, læra nýja starfshætti, fylgjast með samskiptum og daglegum störfum við iðkendur, þjálfara og annað starfsfólk auk þess að efla tengslanet sitt. Algengt er að vettvangsheimsóknir standi yfir í 2 - 4 daga, auk 2 ferðadaga. Hægt er að heimsækja annað íþróttafélag með allt að 10 þátttakendum frá Íslandi í 2-14 daga.

b) Þjálfunarverkefni þar sem þjálfarar taka þátt í þjálfun eða sjá um þjálfun hjá móttökuíþróttafélögum í Evrópu með það að markmiði að miðla þekkingu og reynslu auk þess að sækja sér þekkingu / reynslu / nálgun sem viðkomandi íþróttafélag er að nota í sínu starfi.  Þessi þjálfunarverkefni geta staðið yfir í 15-60 daga.

Styrkurinn er annars vegar ákveðinn ferðakostnaður, miðað við fjarlægð lands í loftlínu og hins vegar einstaklingsstyrkur sem er einingaupphæð ætluð í gistingu og uppihald á meðan verkefninu stendur.

Ekki er krafa um að vera búin/n að finna samstarfsaðila áður en umsókninni er skilað inn. Það hjálpar þó að vera með hugmynd um það hvaða land ykkur langar að heimsækja þar sem ferðakostnaðurinn er byggður á fjarlægð á milli Íslands og þess lands sem á að heimsækja.

 

Nánari upplýsingar um styrkina og allt sem þeim fylgir er að finna hér: https://www.erasmusplus.is/taekifaeri/ithrottir/