Fara á efnissvæði
04. febrúar 2026

Tvö námskeið Æskulýðsvettvangsins í febrúar

Skráning er opin á námskeið Æskulýðsvettvangsins þetta misserið. 

Næstu námskeið eru:

Ítarlegri upplýsingar um námskeið er hér

 

Námskeiðið Verndum þau

Æskulýðsvettvangurinn hefur frá árinu 2010 staðið fyrir námskeiðinu Verndum þau. Námskeiðið er byggt á efni samnefndrar bókar og fjallar um hvernig bregðast á við grun um ofbeldi og vanrækslu gegn börnum og ungmennum. Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem starfa með börnum og ungmennum og öðrum áhugasömum.

Ítarlegri upplýsingar um námskeiðið

 

Námskeið í samskiptum og siðareglum

 Markmiðið með námskeiðinu er að kynna siðareglurnar fyrir starfsfólki og sjálfboðaliðum innan félagasamtakanna og innleiða starfshætti í anda þeirra hjá hverjum og einum, sem og félagasamtökum í heild sinni. Tilgangurinn með því er að stuðla að heilbrigðu, uppbyggjandi, vönduðu og öruggu umhverfi fyrir allt fólk í íþrótta- og æskulýðsstarfi.

Ítarlegri upplýsingar um námskeiðið

 

Þetta er Æskulýðsvettvangurinn

Æskulýðsvettvangurinn vinnur að fræðslu- og forvarnarmálum barna og ungmenna í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Hann er samstarfsvettvangur UMFÍ, Bandalags íslenskra skáta, KFUM og KFUK á Íslandi og Slysavarnarfélagsins Landsbjargar.

Á vefsvæði Æskulýðsvettvangsins er viðbragðsáætlun, sem nýtist þegar atvik koma upp í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Þar á meðal eru ráðleggingar varðandi áföll sem börn, ungmenni og ábyrgðaraðilar verða fyrir í starfi og utan þess. 

 

Upplýsingar um fleiri námskeið vorið 2026 má sjá hér.