Fara á efnissvæði
04. desember 2024

UMFÍ og ÍSÍ bjóða í kaffi á Degi sjálfboðaliðans

Í tilefni af Degi sjálfboðaliðans fimmtudaginn 5. desember bjóða UMFÍ og ÍSÍ sjálfboðaliðum íþróttahreyfingarinnar að koma í Íþróttamiðstöðina í Laugardal og halda upp á daginn. Öllum er boðið, fyrrverandi stjórnarfólki UMFÍ, sjálfboðaliðum og fleirum til sem langar að lyfta sér upp eftir gott starf sem sjálfboðaliði íþróttahreyfingarinnar. 

Klukkan 15:00 verður stutt málþing þar sem Íþróttaeldhugi ársins 2023, Guðrún Kristín Einarsdóttir ætlar þar að segja sögu sína af sjálfboðastarfi fyrir íþróttahreyfinguna. Jónas Hlíðar Vilhelmsson, formaður Fálka, sem er feðraklúbbur í Val, segir frá starfi þeirra. Að lokum ætlar Petra Ruth Rúnarsdóttir, formaður ungmennafélagsins Þróttar Vogum, að segja frá því hvað þátttaka í sjálfboðastarfi hefur gefið henni.

Að dagskrá lokinni eða um klukkan 16:00 er öllum viðstöddum boðið í vöfflukaffi í boði Vilko og Mjólkursamsölunnar í þjónustumiðstöð UMFÍ, sem er á þriðju hæð Íþróttamiðstöðvarinnar. 

Boðið verður líka upp á kaffi í þjónustumiðstöð UMFÍ á Sauðárkróki.  

Með þessu vilja ÍSÍ og UMFÍ vekja athygli á ómetanlegu framlagi sjálfboðaliða til íþróttastarfsins, en án þeirra gengi starfið einfaldlega ekki upp.

Hér er hlekkur á viðburðinn

UMFÍ hvetur íþróttahreyfinguna um allt land til að nýta daginn og lyfta starfi sjálfboðaliða upp með einum eða öðrum hætti.

Takk sjálfboðaliðar!