Við leitum að svæðisfulltrúa á Austurlandi
Vilt þú vinna sem svæðisfulltrúi að eflingu íþróttastarfs á Austurlandi?
ÍSÍ og UMFÍ leita að einstaklingi með brennandi áhuga á íþróttastarfi og samskiptum til að taka þátt í að efla íþróttastarf á Austurlandi.
Um tímabundið starf er að ræða frá mars/apríl 2026 og til næstu 8 mánaða. Möguleiki er á framtíðarstarfi í samstarfi við Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands (UÍA).
Frestur til að sækja um starfið er til miðnættis 15. febrúar næstkomandi.
Sextán svæðisfulltrúar vinna á átta starfsstöðvum um allt land. Tveir svæðisfulltrúar eru á hverju svæði. Tveir eru á Austurlandi en einnig er teymisvinna um allt land.
Starfsfólk svæðastöðva tekur þátt í að skapa tækifæri og þróa íþróttaumhverfið, með sérstakri áherslu á fyrir börn og ungmenni.
Starfsemi svæðastöðva byggir á teymishugsun þar sem samvinna, fagmennska og frumkvæði í sterkri liðsheild er grundvallaratriði.
Svæðisfulltrúi íþróttahéraðanna gerir eftirfarandi
• Vinnur að eflingu íþróttastarfs á sínu svæði og með öðrum svæðisfulltrúum á landsvísu.
• Vinnur að innleiðingu á stefnu og markmiðum íþróttahreyfingarinnar.
• Vinnur að innleiðingu á stefnu og markmiðum stjórnvalda í íþróttamálum á sínu svæði og á landsvísu.
• Bætir almenna umgjörð í kringum íþróttastarf.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Leitað er að hæfileikaríkum einstaklingi með fjölbreytta þekkingu til að gegna ofangreindum verkefnum.
• Reynsla og þekking af starfi innan íþróttahreyfingarinnar er kostur.
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi og samstarf við sveitarfélög er kostur.
Umsækjandi þarf að sjálfsögðu að hafa hreint sakavottorð í samræmi við ákvæði í íþróttalögum.
Ítarlegar upplýsingar og umsóknir á Alfreð:
Fyrirspurnir má senda í tölvupósti á andri@isi.is eða audur@umfi.is