Vilja halda gleðinni lengur í íþróttum
Ungt fólk vill halda gleðinni í íþróttum lengur svo þau haldi áfram að taka þátt. Þetta er á meðal þess sem kom fram á viðburðinum Raddir ungs fólks, sem fram fór í Íþróttahöllinni á Akureyri á þriðjudag. Mæting á viðburðinn var afar góð og sóttu hann ungmenni á aldrinum 15 til 25 ára, forsvarsfólk úr íþróttahreyfingunni á Norðurlandi eystra, sveitarstjórnarfólk og ýmsir fleiri sem hafa áhuga á íþróttum, hafa æft íþróttir, hafa hætt að æfa íþróttir og eruð enn að æfa íþróttir – en líka annað fólk sem hefur áhuga á málinu.
Á fundinum gafst ungu fólki kostur á að koma sínum málum á framfæri við ráðafólk innan íþróttahreyfingarinnar og fulltrúum sveitafélaga á Norðurlandi eystra með það fyrir augum að bæta starfið. Mikill kostnaður vegna keppnisferða var fólki ofarlega í huga og takmörkuð tækifæri fólks á landsbyggðinni til íþróttaiðkunar ásamt því sem ungu fólki þyki lítil samvinna vera á milli stjórnenda framhaldsskóla og íþróttafélaga. Stjórnendur skólanna megi taka meira tillit til þeirra nemenda sem þurfi að sinna íþróttakeppnum.
Ólafur Stefánsson, fyrrum landsliðsfyrirliði í handknattleik, heimspekingur og meistaranemi í íþróttasálfræði, hélt erindi á fundinum um lærdóm af íþróttaiðkun. Eftir erindi Ólafs var fólki skipt niður á borð og tóku allir þátt í samtali um íþróttir og starfið.
Viðburðurinn var hluti af landsverkefni UMFÍ, ÍSÍ, Svæðisstöðva íþróttahéraðanna og Ungmennaráðs UMFÍ og miðaði að því að efla lýðræðislega þátttöku ungs fólks en sporna líka gegn brottfalli úr skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi. Niðurstöður fundanna verða meðal annars nýttar í heildstærði stefnumótun íþróttahreyfingarinnar, sem nú stendur yfir.
Síðar sama dag fór svo fram stefnumótunarfundur ÍSÍ og UMFÍ. Á fundinum voru Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, og Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ, ásamt starfsfólki svæðisstöðva íþróttahéraðanna á Norðurlandi vestra.
Fundir af þessum toga verða haldnir um allt land, þeir hófust á Austurlandi, voru á Norðurlandi vestra á mánudag og eru fleiri fundir á dagskrá eftir páska.
Hér að neðan má sjá nokkrar myndir frá viðburðinum.
Fleiri myndir má sjá í myndasafni UMFÍ: