Fara á efnissvæði

Keppnisgreinar 2026

Pönnukökubakstur

Dagur, tími og staðsetning

Dagsetning: Sunnudagur 28. júní.
Tími: 14:00 - 15:00.
Staðsetning: Grunnskóli Hrafnagilshverfi.  

 

Kynja- og aldursflokkar

Einn kynjaflokkur, 50 ára og eldri. 

 

Keppnisfyrirkomulag / reglur

  • Dæmt er eftir hraða, fjölda, leikni, hreinlæti, útliti og bragðgæðum. 

  • Uppskriftina velur keppandinn sjálfur að því undanskildu að í henni eiga að vera 150 grömm hveiti og að minnsta kosti 1 egg (meðalstórt). 

  • Keppandi leggur fram nákvæma uppskrift áður en keppni hefst. Nafn keppanda, heimilisfang og símanúmer skal koma fram á blaðinu. 

  • Mótshaldari leggur til algeng efni í pönnukökur: Hveiti, sykur, egg, mjólk, smjörlíki, matarolíu, lyftiduft, sódaduft (natron), sítrónudropa, vanilludropa og kardimommudropa. Ef óskað er eftir öðrum efnum/bragðefnum eða einhverri sérstakri tegund af hráefni verða keppendur að útvega þau sjálfir og hafa meðferðis. Keppandi skal þó nota það hveiti sem mótshaldari leggur til. 

  • Hver keppandi fær vinnuborð með rafmagnshellu, áhald til að hræra deigið með, ausu, skál, mæliílát, sigti, sleikju, vinnudisk, kökufat og borðklút. 

  • Keppendur koma með eigin pönnukökupönnu og pönnukökuspaða. Heimilt er að koma með ausu og áhald til að hræra deigið með. Ekki er þó heimilt að nota rafmagnsþeytara. 

  • Áður en keppni hefst eru rafmagnshellur prófaðar, áhöldum raðað og allt tekið til í deigið. Leyfilegt er að blanda þurrefnunum í skál áður en keppni hefst, en ekki skal setja vökva eða byrja að hræra deigið saman fyrr en keppni er hafin.  

  • Í lokin er 10 pönnukökunum skilað upprúlluðum með sykri en hinar tvíbrotnar í horn. 

  • Keppni er ekki lokið fyrr en pönnukökum hefur verið komið fyrir á kökufati og gengið frá vinnuborði, áhöldum raðað og borðið þvegið. 

Stigatafla

Hraði og fjöldi (25 stig)

  • Fjöldi – 10 stig (20 kökur gefa 10 stig, 19 kökur gefa 9 stig osfrv.) 
  • Hraði – 15 stig (17 mínútur gefa 15 stig, 18 mínútur gefa 14 stig osfrv.)

Leikni og hreinlæti (25 stig) 

  • Örugg vinnubrögð – 5 stig
  • Umgengni á vinnusvæði meðan bakað er – 5 stig 
  • Frágangur á pönnukökum á fati – 5 stig 
  • Frágangur á vinnusvæði – 5 stig 
  • Frágangur uppskriftar – 5 stig 

Útlit (25 stig) 

  • Engin göt – 5 stig 
  • Allar kökur rétt lagaðar – 5 stig 
  • Allar kökur samlitar – 5 stig 
  • Engin kaka hrá eða brennd – 5 stig 
  • Engin kaka kekkjótt – 5 stig 

Bragðgæði (25 stig)

  • Góðar pönnukökur gefa mest 25 stig ,Sæmilegar pönnukökur gefa mest 15 stig.
  • Slæmar pönnukökur gefa mest 5 stig.

 

Þátttakendalisti

Upplýsingar koma að loknum skráningafresti. 

 

Úrslit

Upplýsingar koma að lokinni keppni.