Dagur, tími og staðsetning
Dagsetning: Föstudagur 26. júní.
Tími: 18:00 -
Staðsetning: Íþróttahöllin Akureyri.
Kynja- og aldursflokkar
Blandaður kynjaflokkur, 50 ára og eldri.
Keppnisfyrirkomulag / reglur
Mögulegt er að skrá sig sem einstakling í Ringó og verður þá búið til blandað lið.
- Tvö lið spila á móti hvort öðru. Fjöldi í liði er sjö leikmenn að hámarki í hverjum leik og fjórir spila inná í einu. Almennt fer skipting fram við uppgjafareit nema einhver meiðist.
- Spilað er á blakvelli og hæð nets, efri brún á að vera 224 cm.
- Spilað er með tvo hringi. Bæði lið gefa upp samtímis frá uppgjafareit. Þeir tveir, sem gefa upp, gefa hvor öðrum merki með því að lyfta hring upp fyrir höfuð.
- Uppgjafareitur: Breidd 80 cm, lengd 150 cm frá baklínu (hægra horn viðkomandi vallarhelmings).
- Hver leikmaður gefur upp þrisvar sinnum. Síðan færa leikmenn sig um eina stöðu réttsælis.
- Spilað er upp að ákveðnum stigafjölda (15,21 eða 25 stig) og þarf að vera a.m.k tveggja stiga mismunur.
- Eitt stig fæst fyrir hring, sem lendir á vallarhelmingi mótherja. Tvö stig fást ef báðir hringir liggja á vallarhelmingi mótherja.
- Ef tvö eða fleiri lið eru jöfn að stigum gildir:
- Fjöldi stiga
- Stigamismunur (skoruð stig að frádregnum fengnum stigum)
- Innbyrðis leikur/-ir
- Stigamismunur í innbyrðis leikjum
- Fleiri skoruð stig í innbyrðis leikjum
- Hlutkesti (ef viðkomandi lið eru jöfn og liðir 8.1 – 8.5 duga ekki til að fá fram röðun liða).
Riðlakeppni:
- Ef 2 riðlar (A og B og leikið er um verðlaun):
- Tvö efstu liðin leiki í kross og sigurvegararnir leiki hreinan úrslitaleik og tapliðin um þriðja sæti.
1A – 2B og 2A – 1B. - Ef 3 riðlar: Sigurvegarar riðlanna leika til úrslita um sæti 1-3.
- Ef 4 riðlar: Skoðað nánar ef sú staða kemur upp en mjög ólíklegt að riðlar verði svo margir.
Stefnt skal að því að félagsmenn dæmi ekki, þegar þeirra lið er að spila.
Stig tapast:
- Ef hringnum er ekki kastað nær flötum, risið 45° - 60° í lagi.
- Ef hringurinn flöktir (smá flökt þó leyft).
- Ef ekki er kastað með sömu hendi og gripið var með.
- Ef komið er við hringinn með báðum höndum.
- Ef hringurinn dettur í gólfið.
- Ef hringnum er kastað út fyrir völlinn eða í netið (fer ekki yfir netið).
- Ef hringurinn kemur við netið í uppkasti.
- Ef hringur er sendur á samherja.
- Ef leikmaður gengur með hringinn meira en eitt framstig.
- Ef leikmaður sem gefur upp, stígur á línu í uppgjöf (merktur uppgjafareitur með línum).
- Ef leikmaður er lengur en 3 sek. að losa sig við hring.
Í lagi er:
- Hringur má lenda í brjóstkassa/maga/handlegg eða aðra líkamshluta (nema d lið í stig tapast) grípa svo og henda.
- Má grípa báða hringi (með sitthvorri hendi) en þá verður að kasta fyrst þeim hring sem gripinn var á undan.
- Má stíga á línu og annar fótur út fyrir völl.
- Skref með hring (eitt framstig með hringinn).
- Leikmaður snertir hringinn en annar grípur.
- Uppstökk og kasta í kjölfarið.
- Í miðjum leik má hringur snerta net og velta yfir.
Þátttakendalisti
Upplýsingar koma að loknum skráningafresti.
Úrslit
Upplýsingar koma að lokinni keppni.
Riðlar
Riðill A
Riðill B
Riðill C
Tímaseðill
TÍMI
RIÐILL A
RIÐILL B
RIÐILL C
18:00
18:15
18:30
18:45
19:00
19:15
19:30
Úrslit 1A - 1B
19:45
Úrslit 1C - 1A
20:00
Úrslit 1B - 1C