Svör við algengum spurningum
-
Þegar þú kemur á Sauðárkrók þá er það fyrsta sem þú gerir að koma við í þjónustumiðstöð mótsins og ná í armbandið þitt. Þjónustumiðstöðin er staðsett í grunnskólanum Árskóla við Skagfirðingabraut.
Allir þátttakendur 11 - 18 ára á Unglingalandsmóti fá armband sem þeir þurfa að hafa alla mótsdagana. Þetta armband veitir þeim aðgang að öllum keppnisgreinum sem þau hafa skráð sig í og einnig aðgang að allri dagskrá mótsins. Yngri systkini, 10 ára og yngri geta einnig fengið armband sem ekkert kosta og eru í raun bara til að þau séu með í veislunni.
Ef armbandið slitnar á meðan mótinu stendur þá kemur þú með það í þjónustumiðstöðina og færð nýtt armband afhent.Armbandið opnar líka þátttakendum dyr, því öll með armband fá ókeypis í sund í Skagafirði.
-
Ert þú að velta því fyrir þér hvort yngri systkini geti komið með?
Unglingalandsmót UMFÍ er vímulaus íþrótta- og fjölskylduhátíð. Öll ungmenni sem verða 11 ára á árinu og upp að 18 ára geta tekið þátt í íþróttagreinum mótsins. Árið gildir.
Börn yngri en 10 ára fá líka fjölmörg verkefni eins og foreldrarnir. Það verður líf og fjör á mótinu frá morgni til kvölds alla mótsdagana. Hér eru nokkur sýnishorn af því sem boðið verður uppá fyrir þau sem eru 10 ára og yngri: Fótboltafjör, leikjagarður, LED badminton, fimleikar, sundlaugarpartý, körfuboltapartý, blindrarbolti, ringó, frísbígolf, bæjarganga, jóga, kvöldvökur, tónleikar, dans, diskó og margt fleira. Öll afþreying er opin og kostar ekki krónu.
Börn í fylgd fullorðinna á mótinu greiða ekkert þátttökugjald. Ekki er gert ráð fyrir því að börn og ungmenni yngri en 18 ára séu á eigin vegum á mótinu. -
Auðvitað bönnum við ekki bíla á mótinu en takmarkaður fjöldi bílastæða eru í nágrenni við íþróttasvæðið. Við værum þakklát ef þeir yrðu notaðir sem minnst.
-
Sumir geta ekki verið án dýranna sinna. Gott er að vita að hundar eru bannaðir á íþróttasvæðinu á Sauðárkróki.
-
Það er einfalt mál að komast á Sauðárkrók.
Hér eru nokkrar vegalengdir:- Reykjavík – Sauðárkrókur 291 km.
- Ísafjörður – Sauðárkrókur 436 km.
- Akureyri – Sauðárkrókur 120 km.
- Egilsstaðir – Sauðárkrókur 367 km.
- Höfn – Sauðárkrókur 552 km.
-
Nei, ekki í öllum greinum. Sumar eru fyrir ákveðna aldursflokka. Mikilvægt er að skoða aldursflokka greinanna. Svo er líka ljóst að enginn getur keppt í öllum greinum mótsins. Þær eru of margar og einhverjar fara fram á sama tíma.
Að þessu sögðu þá er bara eitt keppnisgjald og þeir sem það greiða geta valið sér keppnisgreinar að vild í samræmi við aldursflokka viðkomandi greinar. -
Hraðbankar eru í Arion banka og Landsbankanum.
-
Liðakeppni er í nokkrum greinum. Við skráningu í liðakeppni þarf hver og einn að ganga frá sinni skráningu. Sá sem skráir sig fyrst þarf að stofna liðið. Þegar búið er að stofna lið geta aðrir þátttakendur skráð/valið lið. Ekki er hægt að ganga frá skráningu fyrir heilt lið nema með því að senda tölvupóst á netfangið umfi@umfi.is.
Ertu ekki með full skipað lið?
Ef það eru t.d. tveir vinir sem skrá sig til leiks en vantar fleiri til þess að fullskipa liðið, þá er heppilegast að finna nafn á liðið og skrá nafnið á liðinu. Við hjá UMFÍ munum svo sjá um að koma viðkomandi saman í lið.Vantar þig lið?
Ef einstaklingur hefur áhuga á að vera með í liði er heppilegast að skrá sig til leiks og velja forskráðu greinina „án liðs“. Við hjá UMFÍ röðum viðkomandi svo í lið.Hlekkur til að skrá þátttakanda í greinar er undir liðnum skráningar í appinu (velur shop - skammstöfun þína efst í hægra horni og velur kvittun fyrir greiðslu þátttökugjalds á Unglingalandsmótinu). Hlekkurinn er líka á kvittun sem barst í tölvupósti fyrir greiðslunni.
-
Það getur verið ruglingslegt og flókið að skilja allt tal um íþróttahérað, sambandsaðila og félög. UMFÍ er landssamband fyrir íþrótta- og ungmennafélög um allt land. Sambandsaðilar UMFÍ eru 26 talsins sem skiptast í 25 íþróttahéruð og eitt ungmennafélag með beina aðild.
Dæmi:
Jón býr í Reykjavík og æfir körfubolta með Val. Íþróttafélagið Valur er félag undir Íþróttabandalagi Reykjavíkur (ÍBR) sem er sambandsaðili UMFÍ. Jón tilheyrir því ÍBR á Unglingalandsmótinu.
Gunna æfir frjálsar með Skallagrími. Skallagrímur er aðildarfélag Ungmennasambands Borgarfjarðar (UMSB), sem er sambandsaðili UMFÍ. Gunna tilheyrir því UMSB á mótinu.Hvaða sambandsaðila tilheyrir þú?
Hér er að finna lista yfir landshluta og íþróttahéruð.
Höfuðborgarsvæðið- ÍBR – Íþróttabandalag Reykjavíkur
- ÍBH - Íþróttabandalag Hafnarfjarðar
- UMSK – Ungmennasamband Kjalarnesþings
- V – Ungmennafélagið Vesturhlíð (félag með beina aðild)
Vesturland
- HSH – Héraðssamband Snæfellsness og Hnappadalssýslu
- ÍA – Íþróttabandalag Akraness
- UDN – Ungmennasamband Dalamanna og N Breiðfirðinga
- UMSB – Ungmennasamband Borgarfjarðar
Vestfirðir
- HSS – Héraðssamband Strandamanna
- HHF – Héraðssambandið Hrafnaflóki
- HSB- Héraðssamband Bolungarvíkur
- HSV – Héraðssamband Vestfirðinga
Norðurland eystra
- UMSS – Ungmennasamband Skagafjarðar
- USAH – Ungmennasamband Austur Húnvetninga
- USVH – Ungmennasamband Vestur Húnvetninga
Norðurland eystra
- HSÞ – Héraðssamband Þingeyinga
- ÍBA – Íþróttabandalag Akureyrar
- UÍF – Ungmanna- og Íþróttasamband Fjallabyggðar
- UMSE – Ungmennasamband Eyjafjarðar
Austurland
- UÍA – Ungmenna- og Íþróttasamband Austurlands
- USÚ – Ungmennasambandið Úlfljótur
Suðurland
- HSK – Héraðssambandið Skarphéðinn
- USVS – Ungmennasamband Vestur Skaftafellssýslu
- ÍBV - Íþróttabandalag Vestmannaeyja
Suðurnes
- ÍRB - Íþróttabandalag Reykjanesbæjar
- ÍS - Íþróttabandalag Suðurnesja
-
Á mótssvæðinu verður stórt veitingatjald sem verður opið frá morgni til kvölds og þar verður boðið upp á allskonar góðgæti.
Á Sauðárkróki eru líka ljómandi góðir veitingastaðir sem vert er að heimsækja.
-
Unglingalandsmót UMFÍ á Sauðárkróki 2026 er samstarfsverkefni UMFÍ, UMSS og Sveitarfélags skagafjarðar.
-
Mótssetning fer fram á íþróttavellinum og hefst kl. 20:00 á föstudeginum.
Ætlast er til þess að allir þátttakendur taki þátt í mótssetningunni og ganga þeir inn á mótssvæðið í skrúðgöngu með sínu íþróttahéraði í upphafi setningarinnar.Þátttakendur munu hittast í aðdraganda mótssetningar klukkan 19:30 á gervigrasvellinum.
Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ flytur stutt ávarp og setur mótið. Landsmóts eldurinn verður tendraður og hátíðarfáni UMFÍ dreginn upp.
-
Að lokinni kvöldvöku á sunnudagskvöldinu er mótinu formlega slitið.
-
Óskilamunum verður safnað saman í þjónustumiðstöð mótsins. Að loknu móti verður hægt að senda póst á netfangið umfi@umfi.is
-
Það verður fjöldi ruslatunna um allt mótssvæðið. Hjálpaðu okkur að halda svæðinu snyrtilegu og henda rusli í tunnurnar. Við munum flokka eftir ákveðnu kerfi en upplýsingar um það verða á mótsstað.
Umgengni sýnir innri mann er gott máltæki sem mótsgestir ættu að temja sér. -
Salerni eru á tjaldsvæðinu. Þau eru einnig að finna í íþróttamannvirkjum og á keppnisstöðum mótsins. Svo eru þau að sjálfsögðu á veitingastöðum og í verslunum um allan bæ.
-
Fyrir minni meiðsli er hægt að finna sjúkrakassa með plástrum og þess háttar í þjónustumiðstöð mótsins. Á tjaldsvæðinu er björgunarsveitarfólk með sólarhringsvakt og þangað er alltaf hægt að leita. Ef meiðsli eru hinsvegar alvarleg skal hringja í 112.
Heilsugæsla/sjúkrahús er á Sauðárkróki og þar verða læknar á vakt alla mótsdagana. Hjúkrunarfræðingar svara vaktsímanum 1700 allan sólarhringinn, veita ráðgjöf, leiðbeiningar og vísa áfram til lækna eftir þörfum.
-
Það eru um 450 sjálfboðaliðar sem koma að undirbúningi og framkvæmd mótsins. Það eru því miklar líkur á því að það verði sjálfboðaliði sem þú mætir í hinum ýmsu hlutverkum á mótinu. Sendu þeim bros og þakklæti fyrir að leggja sitt af mörkum við að gera mótið þitt að ánægjulegri upplifun.
-
Opnað var fyrir skráningu 15. júní.
Þátttakendur greiða eitt þátttökugjald, 11.900 kr. óháð því hvað þeir taka þátt í mörgum keppnisgreinum. Gjaldið þarf að greiða rafrænt við skráningu á mótið. Aðeins er greitt fyrir þátttakendur 11 – 18 ára. Frítt er fyrir systkini og foreldra.
Eftir að skráningarfresti lýkur er ekki hægt að skrá sig rafrænt né tryggja þátttöku í öllum greinum. Hins vegar munum við gera okkar besta til að allir geti tekið þátt. Sendið póst á umfi@umfi.is.
Við hvetjum þátttakendur til þess að skrá sig tímanlega. -
Þegar þú ert búin/n að skrá þátttakanda á mótið í Abler, þá ættirðu að fá tölvupóst með hlekk á. Hlekkurinn vísar á skráningu í greinar. Ef þú hefur ekki fengið hlekkinn eða vilt fara beint á skráningarsíðuna í gegnum appið þá þarftu að fara þessa leið:
- Opnaðu Abler–appið.
- Farðu inn á prófílinn þinn.
- Smelltu á hnappinn: „Verslanir og markaðstorg“.
- Veldu „Markaðstorg“.
- Veldu „Ungmennafélag Íslands“.
- Ýttu á upphafsstafi/prófílmynd þína (efst í hægra horninu).
- Farðu í „Skráningar“.
- Finndu Unglingalandsmótið og ýttu á „Sjá meira“.
Nú ættir þú að geta skráð þig og þína í greinar og/eða skoðað þær sem þú eða þátttakandinn er þegar skráð/ur í.
-
Ef stofna á lið með þátttakendum á mismunandi aldri, er hægt að hafa samband við UMFÍ til að ganga frá skráningu. Það er gert á netfangið umfi@umfi.is eða í síma: 568-2929. Við aðstoðum með ánægju.
-
Ef stofna á lið með þátttakendum af mismunandi kynjum, er hægt að hafa samband við UMFÍ til að ganga frá skráningu. Það er gert á netfangið umfi@umfi.is eða í síma: 568-2929. Við aðstoðum með ánægju.
-
Skráðir þátttakendur fá frítt í sund með því að framvísa armbandi mótsins í sundlaugar í Skagafirði.
-
Öll með armband fá ókeypis í sund í Skagafirði.
Opnunartími sundlaugarinnar hefur verið lengdur yfir helgina: ...
-
Tjaldsvæði mótsins verður á Nöfunum, rétt fyrir ofan íþróttasvæðið í hjarta Sauðárkróks. Þar verður gott pláss fyrir fjölskyldur og gesti sem vilja njóta þess að vera í miðju stemningarinnar alla helgina.
Gjald fyrir hverja tjaldsvæðiseiningu er 9.900 kr. og gildir það fyrir alla helgina, frá fimmtudegi til mánudags. Innifalið í gjaldinu er aðgangur að rafmagni, snyrtingum og rennandi vatni.
Þeir sem hyggjast dvelja á tjaldsvæðinu þurfa að skrá sig og ganga frá greiðslu áður en komið er á mótsstað. Skráning fer fram á UMFÍ og opnar 15. júní 2026.
Tjaldsvæðinu verður ekki skipt upp eftir íþróttahéruðum og því verður líf og fjör um allt svæðið. Á meðan mótinu stendur verður sólarhringsgæsla björgunarsveitarfólks á svæðinu til að tryggja öryggi og góða umgjörð fyrir alla gesti.
-
- Ekki má hlaða rafmagnsbíla í rafmagnskerfi tjaldsvæðisins. Kerfið þolir ekki það álag og slær út. Sá eða sú sem uppvís verður að misnotkun á rafmagnskerfinu þarf að greiða fyrir útkall viðgerðarfólks og þann skaða sem af þessu hlýst.
- Við takmörkum alla umferð á tjaldsvæðinu og óskum eftir því að bílar verði geymdir utan þess. Öll umferð ökutækja á og við tjaldsvæði er bönnuð á tímabilinu kl. 24:00–07:00 nema með sérstakri heimild eftirlitsfólks.
- Öðrum en tjaldbúðagestum er ekki hleypt inn í tjaldbúðirnar eftir kl. 24:00.
- Kyrrð skal vera komin á í tjaldbúðum kl. 00:30.
- Brýnt er ökumenn fari mjög varlega á tjaldsvæðinu.
- Allar eigur gesta eru á ábyrgð þeirra í tjaldbúðunum.
- Brýnt er fyrir öllum að setja sorp í þar til gerð ílát á tjaldsvæðinu.
- Hundaeigendur verða að hafa hunda sína í bandi og sjá um að þrífa eftir þá.
- Gæsla verður á tjaldsvæðinu allan sólarhringinn meðan Unglingalandsmótið stendur yfir.
- Öll neysla vímuefna er að sjálfsögðu bönnuð.
- Aðgát skal höfð í meðförum elds. Athugið að aldrei skal setja grill inn í tjald eða fortjald. Þegar tjaldað er eða hjólhýsi/fellihýsi/húsbíll er staðsett á tjaldsvæðinu skulu ætíð vera a.m.k. 3 metrar á milli eininganna.
- Brjóti einstaklingur þessar reglur hefur mótshaldari heimild til að vísa viðkomandi af svæðinu.
- Neyðarnúmer er 112.
-
Eftir að hafa stundað íþróttir allan daginn er frábært tækifæri að taka fram dansskóna og skemmta sér á kvöldin með gömlum og nýjum vinum.
Meðal þeirra sem koma fram eru: Ernir Daði, Ragga Hólm, Sprite Zero Klan, Maron Birnir, Úlfur Úlfur og Reynir Snær, Eysteinn og Lillý.
-
Vakin er athygli á því að allir þátttakendur á Unglingalandsmóts UMFÍ eru á eigin ábyrgð. Nú er því rétti tíminn til að leita að tryggingaplagginu og fara yfir skilmálana áður en mætt er á mótið til að tryggja að allt sé eins og það á að vera.
-
Allir sem eru 11 - 18 ára á árinu geta skráð sig til keppni á mótinu. Þú þarft ekki að vera í íþrótta- eða ungmennafélagi til þess að geta tekið þátt, allir geta verið með.
Fjöldi keppnisgreina er í boði og allir ættu því að finna keppnisgrein við sitt hæfi. Það er mikilvægt að keppendur taki þátt á sínum forsendum og hafi gleðina í fyrsta sæti.
Vissulega hafa allar keppnisgreinarnar sínar reglur sem allir þurfa að virða og fara eftir. Keppendur geta tekið þátt í eins mörgum greinum og þeir treysta sér til. Mikilvægt er samt að skoða tímasetningar vel því einhverjar keppnisgreinar eru á sama tíma. Það er líka mjög mikilvægt að mæta til keppni ef búið er að skrá sig í ákveðna grein.
Veitt eru verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í öllum greinum, gull, silfur og brons.Hlekkur til að skrá þátttakanda í greinar er undir liðnum skráningar í appinu (velur shop - skammstöfun þína efst í hægra horni og velur kvittun fyrir greiðslu þátttökugjalds á Unglingalandsmótinu). Hlekkurinn er líka á kvittun sem barst í tölvupósti fyrir greiðslunni.
-
Þjónustumiðstöð mótsins verður opin alla mótsdagana þar sem hægt verður að nálgast upplýsingar um dagskrá, keppnisgreinar, mótssvæðið og allt sem tengist mótahaldinu.
Þar fá þátttakendur einnig afhent armbönd sem eru nauðsynleg til að taka þátt í keppni og viðburðum mótsins.
Þjónustumiðstöðin verður staðsett í Árskóla við Skagfirðingabraut.
-
Það skiptir okkur öllu máli að allir gestir okkar séu öruggir og að þeim líði vel. Fulltrúar úr Björgunarsveitum sjá um gæslu á svæðinu og gera sitt til að tryggja öryggi mótsgesta. Við erum aftur á móti öll Almannavarnir og því eru mótsgestir hvattir til þess að sýna náungakærleik og leiðbeina þeim sem misstíga sig í samskiptum eða framkomu við aðra.
Við biðlum til allra ökumanna að keyra varlega, bæði á leiðinni á mótið og frá því og eins á mótssvæðinu sjálfu.