Ungt fólk og lýðheilsa 2026
Dagana 18.–20. september söfnuðust um 80 ungmenni á aldrinum 14–25 ára saman í Skólabúðum UMFÍ á Reykjum í Hrútafirði á ráðstefnunni Ungt fólk og lýðheilsa 2026. Yfirskrift helgarinnar var Blómstrum. Styrkjumst. Tengjumst og var dagskráin, sem Ungmennaráð UMFÍ skipulagði og hefur staðið fyrir árlega frá 2009, byggð upp í kringum spurninguna Hver á þína athygli? Auk þátttakenda fylgdu starfsmenn sveitarfélaga og félagasamtaka hópum sínum, sem og starfsfólk UMFÍ.
Markmið helgarinnar var að skapa öruggan vettvang þar sem ungt fólk gæti eflt félagslega, andlega og líkamlega heilsu sína, tengst öðrum ungmennum og átt milliliðalaust samtal við þingmenn og annað áhrifafólk — og um leið hvatt til þátttöku í félagsstarfi íþrótta- og ungmennafélagshreyfingarinnar.
Fræðsla, vinnusmiðjur og hópefli
Á laugardeginum fluttu þeir Skúli Bragi Geirdal, sviðsstjóri hjá Netvís, og Ólafur Stefánsson, fyrrum fyrirliði íslenska landsliðsins í handbolta, hvor sitt erindið áður en þeir stýrðu vinnusmiðjum með þátttakendum. Skúli fjallaði um hvernig öpp og algóritmar eru hönnuð til að halda notendum við skjáinn — og hvernig við tökum aftur stjórnina. Ólafur fjallaði um sálfræðilegan sveigjanleika og hvernig sá hæfileiki hjálpar okkur að halda tryggð við eigin gildi og markmið.
Erindin voru kveikjan að þremur vinnusmiðjum — Styrkjumst, Blómstrum og Tengjumst — um líkamlega, andlega og félagslega heilsu í tengslum við skjánotkun. Ungmennaráðið stýrði sjálft Tengjumst, sem fjallaði um hvernig skjánotkun hefur áhrif á samskipti og tengsl við annað fólk.
Helgin bauð líka upp á fjölbreytt hópefli, sundlaugarpartý, kvöldvökur og heimahópastarf, þar sem þátttakendur unnu saman þvert á aldur og landshluta.
Kaffihúsaspjall við þingmenn og annað áhrifafólk
Á sunnudeginum tóku þátttakendur þátt í kaffihúsaspjalli við þingmenn og annað áhrifafólk. Á meðal gesta voru:
- Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins.
- Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingmaður Samfylkingarinnar.
- Halla Hrund Logadóttir, þingmaður Framsóknarflokksins.
- Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
- María Rut Kristinsdóttir, þingmaður Viðreisnar.
- Ingvar Þóroddsson, þingmaður Viðreisnar.
- Silja Sóley Birgisdóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins í Reykjavík.
- Einar Jóhannes Guðnason, fulltrúi Miðflokksins í Kópavogi.
- Salma Björt Önnudóttir, fulltrúi Ungliðahreyfingar Miðflokksins.
- Embla Líf Hallsdóttir, formaður Ungra athafnakvenna.
- Þórhildur Vala Kjartansdóttir, varðstjóri hjá lögreglunni.
- Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ.
- Kolbrún Ósk Pétursdóttir, verkefnastýra Æskulýðsvettvangsins
- Patrekur Jóhannesson, fyrrum afreksmaður í handbolta, þjálfari og starfsmaður Afrekssmiðstöðvar ÍSÍ.
- Silja Úlfarsdóttir, íþróttapönkari, þjálfari og umboðsmaður íþróttafólksþ
Gestirnir settust við borð og þátttakendur völdu sér sæti eftir því við hvern þeir vildu spjalla — á um 10 mínútna fresti var gefið merki og fólk færði sig og spjallaði við nýjan viðmælanda. Þátttakendur voru ánægðir með spjallið: „Gekk mjög vel og umræður voru fjölbreyttar. Ráðafólk stóð sig vel,“ sagði einn, og annar bætti við: „Frábær hugmynd og tækifæri sem að gefst alls ekki oft að fá að tala við þingmenn og fleira fólk.“
Í þeirra eigin orðum
Í könnun sem lögð var fyrir eftir helgina kom fram mikil ánægja með dagskrána og skipulagið: „Hún var góð hvatning til að fara úr símanum og kynnast fólki, ásamt því að þetta var mjög vel skipulagt,“ sagði einn þátttakandi, og annar: „Fyrirlesararnir og vinnustofurnar voru mjög góðar.“ Heimahóparnir fengu líka falleg orð: „Virkilega skemmtilegt að hafa svona heimahópa því að maður kynnist þeim svo vel og það kemur svo skemmtileg stemmning, keppnisskap og liðsheild í hópinn.“
Ferðalgið á Reyki
Þátttakendur komu úr öllum landshlutum. Rúta fór frá Reykjavík með viðkomu í Borgarnesi, önnur frá Akureyri með viðkomu á Sauðárkróki, og bílaleigubílar fluttu þátttakendur frá Egilsstöðum og Höfn — en nokkur hópur kom á eigin vegum.
Hvað sögðu þátttakendur
98%
Myndu mæla með ráðstefnunni
90%
Lærðu eitthvað nýtt
93%
Fannst dagskráin góð eða mjög góð