Lottóreglur og lottóúthlutanir
I. Skipting lottótekna UMFÍ
- 79% til sambandsaðila.
- 14% til UMFÍ.
- 7% til fræðslu- og verkefnasjóðs UMFÍ, úthlutun samkvæmt reglugerð sjóðsins.
II. Skipting lottótekna til sambandsaðila UMFÍ
Hluti sambandsaðila (79%) verði skipt þannig:
- 15% til reksturs svæðisskrifstofa íþróttahéraða.
- 85% til íþróttahéraða eftir íbúafjölda 18 ára og yngri 31. desember næstliðins árs.
III. Regla vegna skiptingar til reksturs svæðisskrifstofa íþróttahéraða
Úthlutun á hluta til reksturs svæðisskrifstofa er ekki háð skilyrðum.
IV. Regla vegna skiptingar til sambandsaðila
Skilyrði fyrir úthlutun hvers árs til sambandsaðila er að fulltrúi þeirra hafi mætt á síðastliðið sambandsþing/sambandsráðsfund. Hlutur þeirra sem mæta ekki skerðist og er hlutfall ákvarðað af stjórn UMFÍ og kynnt með fundarboði. Stjórn UMFÍ er einnig heimilt að víkja frá skerðingum vegna mætingar komi upp óvænt og ófyrirséð atvik (t.d. veður eða óhöpp).
Eigi íþróttahérað ekki aðild að UMFÍ skal hlutur þess reiknaður í samræmi við reglurnar um íbúafjölda 18 ára og yngri 31. desember næstliðins árs. Hlutdeild íþróttahéraðsins er deilt út til UMFÍ en áður skal taka tillit til þess að ef innan íþróttahéraðsins sé félag með beina aðild að UMFÍ þá fær viðkomandi félag fjárhæð sem nemur hlutdeild þess af iðkendum 18 ára og yngri innan íþróttahéraðsins skv. nýjustu starfsskýrsluskilum í skilakerfi íþróttahreyfingarinnar.
V. Um úthlutun
Fyrir 15. hvers mánaðar skal úthluta öllum ágóða sem borist hefur fyrir næsta mánuð á undan. Með hverri greiðslu skal fylgja skilagrein sem sýni forsendur fyrir úthlutun.
Fyrirvari
Þessar breytingar taka gildi eftir að samningar nást við ríkisvaldið um að það leggi fram sambærilegan fjárhagslegan stuðning til svæðisskrifstofa íþróttahéraða, m.a. með vísan til farsældarlaga nr. 86/2021. Fram til þess tíma gilda áðurgildandi reglur. Hafi samkomulag milli UMFÍ, ÍSÍ og stjórnvalda ekki náðst fyrir sambandsþing UMFÍ 2025, skal sambandsþing þá taka afstöðu til framhalds málsins.
Samþykkt á 53. Sambandsþingi UMFÍ 2023 í Haukadal.