Fara á efnissvæði
11. október 2024

45. sambandsráðsfundur UMFÍ 2024

Sambandsráðsfundur UMFÍ fer fram í félagsheimilinu Þinghamri á Varmalandi í Borgarfirði á morgun, laugardaginn 12. október. Þetta er 45. sambandsráðsfundur UMFÍ.

Sambandsráðsfundur er æðsta vald í málefnum UMFÍ á milli sambandsþinga, sem eru haldnir annað hvert ár. Fundinn sitja formenn sambandsaðila UMFÍ eða varamönnum þeirra, ásamt stjórn UMFÍ eða varamönnum hennar.

Hér að neðan má sjá allar upplýsingar um fundinn og aðgang að gögnum tengdum efni fundarins.

Allar upplýsingar er að finna á vefsvæði sambandsráðsfundarins.

Smelltu hér: Upplýsingasvæði 45. sambandsráðsfundar UMFÍ 
 

Dagskrá fundarins

10:00 Fundur settur 


Kosning starfsmanna fundarins: Fundarstjóri / Fundarritari.
 
Yfirlit yfir störf frá síðasta þingi
Skýrsla stjórnar
Reikningar lagðir fram
Umræður
Afgreiðsla reikninga
 
Mál lögð fyrir fundinn
Fjárhagsáætlun
Önnur mál frá stjórn
Erindi og mál frá sambandsaðilum
Umræður og málum vísað til nefndar
 
12:30 Hádegishlé
 
Nefndastörf
Nefndir skila áliti, afgreiðsla mála
 
Kynning og umræður
Mót UMFÍ
Íþrótta- og æskulýðslög
Svæðisstöðvar íþróttahéraða
 
16:00 Fundarslit
 

Gögn fundarins
Tillögur fundarins

TILLAGA NR. 1

Fjárhagsáætlun

45. sambandsráðsfundur UMFÍ haldinn að Varmalandi 12. október 2024 samþykkir fjárhagsáætlun 2025.


 
TILLAGA NR. 2

Svæðisstöðvar íþróttahéraða
45. sambandsráðsfundur UMFÍ haldinn að Varmalandi, 12. október 2024, færir ráðherra þakkir fyrir skjót viðbrögð og í framhaldinu stuðning í tengslum við  samstarfsverkefni UMFÍ og ÍSÍ varðandi svæðisstöðvar íþróttahéraða og stofnun hvatasjóðs til þess að styrkja enn frekar áherslur verkefnisins.

Greinargerð: Tillögur voru samþykktar á þingum UMFÍ og ÍSÍ í maí og október 2023. Í desember 2023 var undirritaður samningur við barna- og menntamálaráðuneytið varðandi fjárhagslegan stuðning til verkefnisins í tvö ár og stofnun hvatasjóðs. 
 

TILLAGA NR. 3

Stuðningur við skipulagt íþrótta- og æskulýðsstarf 

45. sambandsráðsfundur UMFÍ haldin að Varmalandi, 12. október 2024, beinir því til stjórnvalda við meðferð fjárlaga að fjárhagslegur stuðningur við UMFÍ og önnur samtök í skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi hækki í samræmi við verðlagsþróun.

Greinargerð: Fjárlög 2025 hafa verið lög fram. Við skoðun á þeim kemur í ljós að áætluð fjárframlög til þeirra samtaka sem eru með samning við mennta og barnamálaráðuneytið er áætluð óbreytt. Þessar áherslur í fjárlögum eru ekki nýtilkomnar og þegar litið er til síðustu 15 ára þá hefur framlagið breyst örlítið og í engu samræmi við verðlagsþróun. Í raun er um verulegar skerðingar að ræða til allra samtakanna. Niðurstöður íslenskra og erlendra rannsókna sýna ótvírætt fram á ávinning fyrir samfélagið af skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi og þess vegna þarf að halda áfram þeim stuðningi. Til þess að ná frekari árangri er nauðsynlegt að bæta við stuðninginn. Sýnt hefur verið fram á að hver króna sem sett er í skipulagt íþrótta- og æskulýðsstarf skilar sér margfalt til baka til samfélagsins. 

 
TILLAGA NR. 4

Þrastaskógur og Þrastalundur

45. sambandsráðsfundur UMFÍ haldinn að Varmalandi, 12. október 2024 hvetur stjórn UMFÍ til þess að gæta hagsmuna hreyfingarinnar í málefnum er varða Þrastaskóg og Þrastalund. 

Greinargerð: Á árinu 2014 var húsnæði Þrastalundar selt en landið sem húsið stendur á er leigt kaupanda hússins. Einnig var gerður rekstrarleigusamningur um tjaldsvæðið í Þrastaskógi.  

Á sambandsþingi UMFÍ 2023 var samþykkt að fela stjórn að rifta rekstrarsamningi um tjaldsvæðið og að láta fjarlægja óleyfisframkvæmdir á svæðinu. Í kjölfar þingsins í fyrra hafa samskipti verið töluverð og mat stjórnar að hagsmunum UMFÍ á svæðinu sé mögulega betur borgið með því að bæta samningsstöðu UMFÍ og uppfæra þá samninga sem í gildi eru.
 

TILLAGA NR. 5

Áfengissala á íþróttaviðburðum

45. sambandsráðsfundur UMFÍ haldin að Varmalandi, 12. október 2024, hvetur aðildarfélög, sem selja áfengi á viðburðum sínum til þess að tryggja aðstæður barna og ungmenna sem mæta á íþróttaviðburði.

Greinargerð: Íþrótta- og ungmennafélög hafa í auknum mæli að undanförnu hafið og/eða aukið sölu á áfengum drykkjum á íþróttaviðburðum sínum. Mikilvægt er að ef félög velja að selja áfengi þá sé slík sala aðskilin frá annarri sölu og þjónustu og að börn og ungmenni sem sæki viðburðina geti gert slíkt örugg og án þess áreitis sem fylgir slíkri sölu.