Fara á efnissvæði
03. ágúst 2026

Akureyringar hlutu Fyrirmyndarbikar UMFÍ

Íþróttabandalag Akureyrar (ÍBA) hlaut Fyrirmyndarbikar UMFÍ í gærkvöldi. Jóna Finndís Jónsdóttir, fyrrverandi formaður frjálsíþróttadeildar Ungmennafélags Akureyrar, aðildarfélags ÍBA, tók við bikarnum fyrir hönd þess við slit Unglingalandsmóts á Sauðárkróki. 

Þátttakendur frá Akureyri þustu þá að sviðinu, fögnuðu og stilltu sér upp fyrir myndatöku.

Hefð er fyrir því við slit mótsins að veita bikarinn þeim sambandsaðila UMFÍ, sem hefur verið til fyrirmyndar á mótinu í háttum og gjörðum. 

Slitin fóru fram á íþróttasvæðinu á Sauðárkróki eftir kappsama en káta helgi. Þegar síðustu tónlistaratriðum mótsins lauk steig Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ, á svið og sleit mótinu.

Hann sagðist vona að allir mótsgestir hafi eignast góðar minningar. Þótt um mót sé að ræða sé fólginn í gleðinni. 

„Fyrir okkur sem höfum fengið að fylgjast með ykkur um helgina er stærsti sigurinn ekki sá sem mældur er í metrum, sekúndum eða stigum. Stærsti sigurinn er að sjá gleðina, kjarkinn, samstöðuna og þá framtíð sem býr í þessum hópi unga fólks.“

Þetta var ekki eini bikarinn sem fór á loft við slit mótsins því Jóhann Steinar afhenti Gunnari Þór Gestssyni, formanni Ungmennasambands Skagafjarðar (UMSS), jafnframt Sigurðarbikarinn svokalla, sem er afhentur mótshaldara hverju sinni og er í minningu Sigurðar Geirdal, fyrrverandi framkvæmdastjóra UMFÍ.