Fara á efnissvæði
31. júlí 2026

Börnin vilja vatn og ávexti á Unglingalandsmóti

„Margir krakkar koma hingað til að spyrja hvort þau geti fengið vatn að drekka. Þeim verður svo heitt í asanum. En svo eru þau líka svo spennt fyrir því að fá ávexti,“ segir Guðrún Sonja Birgisdóttir, sjálfboðaliði í veitingatjaldi Unglingalandsmóts UMFÍ, sem fram fer á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina. 

Á myndinni hér að ofan má sjá Garðar, sem var einn þeirra sem varð að fá sér að drekka enda hafði hann rétt áður tekið þátt í danskeppni af fullum krafti.

Mótsgestir fjölmenntu á mótið strax í gær og var brakandi blíða, sem er þvert á veðurspár. Tjaldsvæðið fylltist fljótt og fóru mörg börn eðlilega að leika sér á íþróttasvæðinu. 

Keppt var í þremur greinum í gær, í júdó, krakkahreysti og golfi. Jafnframt var boðið upp á opna viðburðinn frístældans.

Veitingatjaldið opnaði í gær en ávaxtatjaldið í dag og verða þau bæði opin alla mótsdagana. Fjölbreytt úrval er í boði í veitingatjaldinu, þar á meðal kalt kranavatn. Mótsgestir geta fengið sér ferska ávexti í ávaxtatjaldinu.

Guðrún í veitingatjaldinu er ein af sjálfboðaliðunum sem vinnur á mótinu sem sjálfboðaliði fyrir Ungmennafélagið Nesta á Hofsósi, sem er eitt af aðildarfélögum Ungmennasambands Skagafjarðar (UMSS). Um 400 sjálfboðaliðar um allan Skagafjörð vinna að Unglingalandsmótinu í þeim rúmlega 20 greinum sem eru á mótinu og opnum viðburðum fyrir aðra mótsgesti. 

Rúmlega þúsund þátttakendur á aldrinum 11-18 ára eru skráð til leiks á Unglingalandsmótinu og því á bilinu 5 - 6.000 manns á Sauðárkróki í tengslum við mótið um verslunarmannahelgina. Líf og fjör er á tjaldsvæðinu og heljarinnar fjör í fyrstu greinum dagsins, grashandbolta, badmintoni og knattspyrnu.

Á myndinni hér að neðan má sjá Guðrúnu ásamt öðrum sjálfboðaliða mótsins í veitingatjaldinu.

Fleiri myndir má sjá hér að neðan.