Fara á efnissvæði
27. apríl 2026

Bronshátíð fyrirliðanna

Bronshátíð verkefnisins „Við erum öll fyrirliðar“ fór fram í apríl í Dalsskóla, Ingunnarskóla og Sæmundarskóla í Reykjavík. Á hátíðinni sýndu nemendur skólanna ýmislegt sem þau gerðu í tengslum við verkefnið. 

Verkefnið „Við erum öll fyrirliðar“ er þróunarverkefni UMFÍ, KSÍ og UEA (Knattspyrnusambands Evrópu) sem fyrirtækið KVAN vinnur við í samstarfi við íþróttafélagið Fram. Það fékk styrk frá UEFA Foundation form Children. Verkefnið byggir á þeirri hugmyndafræði að öll sem vilja geti tileinkað sér leiðtogahæfni og leiðtogahegðun og vinna gegn neikvæðri hegðun. Með verkefninu fylgja handbækur fyrir kennara, starfsfólk skóla og nemendur.

 

Hönnuðu boli

Nemendur skólanna nýttu seinni hluta mars og byrjun apríl til að undirbúa fyrir bronshátíðina, keyptu textíl tússpenna og hönnuðu boli. Á Bronshátíðinni sjálfri sýndu nemendurnir afraksturinn af því sem þau höfðu gert. Hátíðirnar voru mikilvægur vettvangur til að fagna framförum nemenda, og verðlauna hvern og einn nemanda með merktum bolum, sem þau skreyttu saman með textíltúss. 

Bronshátíðin heppnaðist vel og sýndi hún fram á mikilvægi þess að markvisst starf með leiðtogahæfni, samskipti og sjálfstyrkingu getur haft jákvæð áhrif á skólabrag og líðan nemenda sem og kennara. 

Að bronshátíðinni lokinni var unnið að eftirvinnu, þar á meðal myndbandsklippingu, yfirferð á efni og frekari samskiptum við skóla. Einnig var haldið áfram með textavinnu og frágang verkefnisins. Skipulögð voru næstu skref með framhald verkefnisins, haft samband við Fram íþróttahús til að bóka fyrir gullhátíðina/uppskeruhátíð sem er lokaviðburður verkefnisins. Áður en að því kemur verður skipulögð silfurhátíð.

Verkefninu „Við erum öll fyrirliðar“ var ýtt úr vör í íþróttahúsi Fram í Úlfarsárdal í janúar. Viðstödd opnunarhátíðina voru m.a. fulltrúar UEFA, þau Carine N´Koué, framkvæmdastjóri Styrktarsjóðs barna hjá UEFA (UEFA Foundation for Children) og Hakan Sjöstrand.

Eftir opnunarhátíðina tók við undirbúningur framhaldsins með öflun gagna og dreifingu á efni, dreifingu á fyrirliðaböndum til skóla, auk funda með UMFÍ þar sem markmið, innihald og framkvæmd voru mótuð. Í framhaldinu var unnið að frekari skipulagningu og samráði með skólunum.

Hér má sjá myndir frá bronshátíð verkefnisins.