Daði Rafnsson: „Getum við breytt einhverju?“
Vandinn í íþróttastarfi barna er ekki afreksíþróttir sem slíkar heldur að aðferðir atvinnu- og afreksíþrótta fullorðinna séu notaðar á börn. Þetta sagði Daði Rafnsson, fagstjóri afreksíþróttasviðs Menntaskólans í Kópavogi, í erindi sínu á ráðstefnu um stöðu og framtíð íþróttastarfs barna á Íslandi, sem fram fór í síðustu viku.
Ráðstefnan var haldin að frumkvæði svæðisstöðva íþróttahéraðanna, Íþróttabandalags Reykjavíkur (ÍBR), Íþróttabandalags Hafnarfjarðar (ÍBH) og Ungmennasambands Kjalarnesþings (UMSK). Vel á annað hundrað manns sóttu ráðstefnuna.
Á ráðstefnunni var fjallað um stöðu og framtíð íþróttastarfs barna á Íslandi, meðal annars í ljósi hækkandi æfingagjalda, kostnaðar við búnað og keppnisferðir og aukinna krafna um fagmennsku í starfinu.
Daði sagði að íþróttir endurspegli gildi samfélagsins. Enginn hafi ákveðið að þróunin yrði með þessum hætti. Nú þurfi að spyrja hvernig við viljum hafa íþróttastarfið á næstu árum. Ísland sé í einni bestu stöðunni til að gera starfið enn betra.
„Vandamálið er atvinnuíþróttavæðing og afreksvæðing íþrótta barna,“ sagði Daði. Með börnum ætti hann við krakka upp að 15–16 ára aldri, á grunnskólaaldri.
Vítahringur kostnaðar
Daði lýsti því hvernig betri þjálfarar krefjist hærri launa, æfingagjöld hækki og kröfurnar aukist í kjölfarið. Í haust hafi hann tekið eftir því hve margir þjálfarar í barna- og unglingastarfi knattspyrnu skiptu um félag. Hann spurði hvers vegna ekki væri frekar leitað að fólki í heimabyggð sem þyki vænt um krakkana í samfélaginu.
Börn sem söluvörur
Daði nefndi fjölmörg dæmi um þróunina: snemmbært val á hæfileikaríkum börnum, dýra einkaþjálfun, unglinga af landsbyggðinni sem flytja einir í íbúð til að æfa og upptökur af leikjum barna sem enginn hafi beðið leyfis fyrir. Fjórtán ára krakkar segist ekki geta farið út að leika sér af því að „rauður dagur“ sé í æfingaprógramminu.
Efnilegir unglingar spili jafnvel tíu leiki á tæpum tveimur vikum, sem leiði til álagsmeiðsla og brottfalls.
Daði gagnrýndi líka hve snemma börnum er skipt eftir getu þótt að það hafi lítið verið rannsakað. Vel þekkt sé að börn sem fædd eru snemma á árinu séu oftar valin. Í tíu ára liði Barcelona hafi átján leikmenn verið fæddir í janúar til mars en aðeins einn í október til desember. Hann sagði sorglegt að talað sé um börn sem „söluvörur“. Í sumar hafi að minnsta kosti sjö fjórtán ára drengir komið við sögu í Bestu deildinni.
Aðrar þjóðir bregðast við
Daði benti á að Danir séu farnir að færa áherslu afreksstarfsins upp í 15–16 ára aldur og að í Noregi séu réttindi barna í íþróttum skráð. Hann lauk erindinu á spurningu til fundargesta:
„Hverjar eru áherslurnar sem við leggjum áherslu á? Gæti verið að við sitjum hér eftir tíu ár og tökum enn og aftur sömu umræðuna, eða getum við breytt einhverju?“
Upptöku frá ráðstefnunni má sjá hér
Fleiri myndir frá ráðstefnunni