Fara á efnissvæði
25. júní 2026

„Ég kynntist bestu vinkonum mínum í brennibolta“

Brennibolti nýtur vaxandi vinsælda hjá fólki á miðjum aldri. Keppt verður í brennibolta á Landsmóti UMFÍ 50+ í Eyjafjarðarsveit um helgina.

Við munum mörg eftir leikjum í brennibolta í grunnskóla. En það er með þessa grein eins og svo margar sem fólk lék sér í á yngri árum, þær eiga það til að rykfalla í minningunni. Það kom þess vegna Anítu Arndal skemmtilega á óvart þegar íbúi í Árbænum spurði á Facebook-hópi fyrir þremur árum íbúa hverfisins hvort einhver vissi um hópa fólks sem æfi brennibolta. 

Það var reyndar ekki raunin. 

En Aníta fékk hugmynd: 

„Ég fór í málið og græjaði hóp. Maðurinn minn bjó til nafn á hann og svo tók þetta að vinda fljótt upp á sig,“ segir Aníta. 

Segja má að þar með var lífi blásið í íþróttina síðan úr grunnskóla því til varð brenniboltahópurinn Fireballs. Hópurinn byrjaði á því að hittast einu sinni í viku og æfa í Selásskóla en flutti sig síðan yfir í hjólaskautahöllina á Höfða. 

Nú eru í hópnum 25 konur og mætir um helmingur þeirra á reglulegar æfingar. 
Aníta þekkti eins og mörg til brennibolta. Til viðbótar bauð frænka hennar henni á æfingu með brenniboltaliði HK fyrir nokkrum árum. 

„Ég prófaði þetta, en greinin greip mig ekki því þær hinar voru svo miklu betri en ég. En frænka mín talaði svo vel um hópinn og svo komst ég að raun um að félagslífið var gott,“ segir hún.

 

Skemmtanagildi í fyrsta sæti

Aníta segir skemmtanagildi lykilatriði í brennibolta. Það sé umfram annað. 

„Okkur finnst rosalega gaman á æfingum. Þótt við keyrum þetta af alvöru þá erum við að njóta þess. Þú þarft nefnilega ekki að hafa neina sérstaka hæfni – bara geta gripið, kastað og skemmt þér,“ segir hún. 

Sama ár og hópurinn varð til var boðið upp á keppni í brennibolta fyrir 20 ára og eldri á Landsmóti UMFÍ 50+ sem fram fór í Vogum á Vatnsleysuströnd. Þetta var sumarið 2024. 

„Þótt við værum nýbyrjaðar að æfa þá stefndum við hátt. En það gekk ekki eftir, því við lentum í fjórða sæti af fjórum mögulegum,“ segir Aníta. 
Hópurinn keppti aftur á Ólafsfirði þegar keppt var í greininni á mótinu í Fjallabyggð í fyrra. 
Aníta segir það mikla upplifun að æfa brennibolta og keppa á þeim fáu viðburðum sem í boði eru. Þar kynnist líka fólk. 

„Á fyrsta mótinu okkar í Vogum kynntumst við stelpum sem voru í hópnum Svörtu ekkjurnar. Þær höfðu æft lengur og gátu frætt okkur um brennibolta. Nokkrar úr þeim hópi hafa síðan komið yfir til okkar,“ segir Aníta. 

Brenniboltahópurinn er ekki innan íþróttafélags og það sama  gildir um marga aðra hópa fullorðins fólks sem æfir ýmsar greinar saman, svokallaðar bumbuboltagreinar. Stelpurnar í Fireballs eru hins vegar engir aukvisar og fara alla leið. Á treyjum liðsins má nefnilega sjá auglýsingar styrktaraðila þess. 

Aníta segir fjölda fólks um miðjan aldur æfa brennibolta, en enginn standi í mótahaldi. Hún hefur stofnað síðu á Facebook þar sem fólk getur skráð sig og tengst öðrum brenniboltahópum. 

Aníta segir að þrátt fyrir aðstöðuleysið þá hafi hún á aðeins þremur árum eignast nýja vini. „Við erum orðin þéttur hópur í liðinu sem þekkist vel. Ég hef eignast mikið af nýjum vinum og bestu vinkonum mínum í dag kynntist ég í þessum hópi,“ segir hún.

 

Þetta er brennibolti
  • Í brennibolta eru tveir hópar hvor á móti öðrum.
  • Börn leika sér í brennibolta í íþróttum í grunnskóla eða í frímínútum í skólum.
  • Greinin hentar fólki á öllum aldri.
  • Í brennibolta er vellinum skipt í tvennt og hvort lið á sínum helmingi vallarins.
  • Þegar leikur hefst er bolti settur á miðju vallarins og snýst  keppnin um að ná boltanum og kasta honum í andstæðing.
  • Leiknum lýkur þegar einn stendur uppi í öðru liðinu.
  • Brennibolta má ekki rugla saman við gryfjubolta, sem líka er  algengur. Í gryfjubolta er notaður mýkri bolti og fleiri. Dýna  er aftan við hvorn hóp. Þegar liðsmaður fær bolta í sig fer við komandi á dýnu andstæðingsins. Ef þau grípa boltann þá eru  þau laus úr gryfjunni.
Meira í Skinfaxa

Viðtalið við Anítu er í Skinfaxa, tímariti UMFÍ. Viðtalið allt og miklu meira er hægt að lesa í rafrænu útgáfu blaðsins. 

Þú getur smellt á myndina af forsíðunni hér að neðan og lesið blaðið.