Fara á efnissvæði
28. október 2024

Ekki gleyma að sækja um styrk

Við minnum á að opið er fyrir umsóknir í Fræðslu- og verkefnasjóð UMFÍ til 1. nóvember næstkomandi, það er á föstudag. 

Markmið sjóðsins er að styrkja félags- og íþróttastarf ungmennafélagshreyfingarinnar í samræmi við stefnu UMFÍ, m.a. með því að auka menntun og þekkingu félaga innan hreyfingarinnar á íþróttagreinum, þjálfun í félagsmálum og félagsstarfi.

Rétt til umsóknar eiga sambandsaðilar UMFÍ, aðildarfélög sem eru virk í starfi og deildir innan þeirra. 

 

Meira um Fræðslu- og verkefnasjóð UMFÍ