Ekki gleyma að skrá þig á Unglingalandsmót
Skráning er í fullum gangi á Unglingalandsmót UMFÍ sem verður haldið á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina. Mikilvægt er að passa að skrá sig á mótið og í greinar í tæka tíð. Opið er fyrir skráningu á mótið til miðnættis á sunnudagskvöld, það er 26. júlí. Það eru því aðeins vikan og helgin sem fólk hefur til stefnu.
Þegar lokað var fyrir skráningu á mótið á Egilsstöðum í fyrra voru þátttakendur rúmlega 1.000 á aldrinum 11–18 ára og höfðu þeir skráð sig samtals í 5.429 greinar en það merkir að hver þátttakandi tók þátt í mörgum greinum.
Eins og gefur að skilja var tjaldsvæði mótsins pakkfullt.
Afspyrnugóð skráning hefur verið á Unglingalandsmót UMFÍ á Sauðárkróki í ár.
Afar góð skráning er í fjölmargar greinar. Síðustu ár hefur verið gríðarlega vinsælt að taka þátt í kökuskreytingum. Á síðasta móti voru þátttakendur tæplega 500, sem kepptust að því að skreyta fallegustu og hugmyndaríkustu kökuna. Álíka margir voru í grasblaki í um 100 liðum, grashandboltinn var álíka stór grein og svo má lengi telja.
Pílukast hefur líka slegið í gegn en á Egilsstöðum í fyrra tóku um 300 manns þátt í keppni, um 80 í skák og hvorki fleiri né færri en 150 í krakkahreysti.
Afar góð skráning var sömuleiðis í frjálsar íþróttir, knattspyrnu og klassískar greinar mótsins. Miðað við skráninguna nú stefnir í heljarinnar fjölda á mótinu á Sauðárkróki.
Nóg verður í boði, tónleikar öll kvöld, fyrirlestrar fyrir foreldra um markmiðasetningu, leiki og heilsu, ofurhetjuhlaup fyrir yngstu mótsgesti, nóg að gera fyrir foreldra og eldri systkini og því ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Af nægu er að taka.
Allar upplýsingar um mótið og afþreyingu er að finna á umfi.is. Þar er hægt að kaupa miða fyrir þátttakendur. Auk þess þarf að kaupa aðgang að tjaldsvæði fyrir þau sem þess þurfa. Rafmagn fylgir með í kaupunum.
Upplýsingar og skráning á Unglingalandsmót
Ertu í vandræðum með skráninguna? Þú getur fundið leiðbeiningar hér: