Fara á efnissvæði
14. apríl 2026

Erla og Fanney sæmdar Gullmerki UMFÍ

Mikið var um að vera á 56. sambandsþing Ungmennasambands Vestur-Skaftafellsýslu (USVS) sem fram fór um helgina. Þingið var vel sótt. 

Þær Erla Þórey Ólafsdóttir og Fanney Ólöf Lárusdóttir voru sæmdar Gullmerki UMFÍ og Árni Jóhannsson, Ólafur Magnússon og Þórdís Erla Ólafsdóttir Dýrfjörð hlutu starfsmerki UMFÍ. Ragnheiður Högnadóttir, sem situr í stjórn UMFÍ, afhenti viðurkenningarnar og flutti ávarp á þinginu þar sem hún fjallaði meðal annars um stefnumótun ÍSÍ og UMFÍ, mikilvægi fyrirtækjanna Íslenskrar getspár og Íslenskra getrauna, svæðisstöðvar íþróttahéraðanna og þá sjóði sem hægt er að sækja styrki í frá UMFÍ.

 

Tímamótasamningur

Á þinginu undirrituðu jafnframt Jóhann Bragi Elínarson, formaður USVS, Björn Þór Ólafsson, oddviti Mýrdalshrepps, og Einar Kristján Jónsson, sveitarstjóri Skaftárhrepps, undir tímamóta samstarfssamning. Samningnum er ætlað að styðja og efla USVS, aðildarfélögin og samfélagið í Vestur-Skaftafellssýslu í heild sinni.

Samninginn má sjá hér

 

Íþróttafólkið

Á þinginu voru útnefnd íþróttamaður ársins, efnilegasti íþróttamaðurinn og lið ársins. 

 

Íþróttamaður ársins

  • Íþróttamaður USVS árið 2025 var útnefndur Egill Atlason Waagfjörð. Á myndinni sem fylgir með að neðan má sjá frá vinstri: Lára Oddsteinsdóttir, sem tók við tilnefningu fyrir Þorstein Björn, Guðbrandur Magnússon, sem tók við tilnefningu fyrir Svanhildi dóttur sína, Katrín Waagfjörð, sem veitti viðurkenningunni viðtöku fyrir Egil son sinn, Jóhann Bragi, formaður USVS, Ásgeir Örn, sem tilnefndur var sem íþróttamaður ársins, og Sigurður Eyjólfur, framkvæmdastjóri USVS.

Efnilegasti íþróttamaður USVS 2025:

  • Efnilegasti íþróttamaður USVS 2025 var útnefnd Freyja Dögg Atladóttir Waagfjörð. Á myndinni hér að neðan má sjá frá vinstri: Rúnar Smári Ragnarsson Blandon, Kristófer Gunnar Bjarkason, Jóhann Bragi formaður USVS, Freyja Dögg Atladóttir Waagfjörð og Sigurður Eyjólfur framkvæmdastjóri USVS.

Lið ársins 2025:

  • Lið ársins 2025 var 5. flokkur Umf. ÁS og Umf. Kötlu í fótbolta. Á myndinni sem fylgir hér að ofan eru frá vinstri: Gréta Björk Einarsdóttir, Sigríður Gabríella Björg Valdimarsdóttir, Freyja Dögg Atladóttir Waagfjörð, Sigurbjörn Ási Pétursson, Signý Heiða Þormarsdóttir, Kristmundur Rafn Guðmundsson, Jóhann Bragi formaður USVS, Jóhannes Birgir Örvarsson, Gunnar Ingi Sigurðsson, Rúnar Smári Ragnarsson Blandon. Á myndina vantar þá Patrek Leó og Sæmund Óla.

 

Meira um þau sem voru heiðruð

Gullmerki UMFÍ

Erla Þórey Ólafsdóttir: Lagði mikið af mörkum til íþrótta- og æskulýðsstarfs í Vestur-Skaftafellssýslu í rúman áratug. Sat í stjórn USVS 2013-2017, framkvæmdastjóri 2017-2024 og formaður 2024-2025. Sat jafnframt um tíma í stjórn Ungmennafélagsins Ármanns.

Fanney Ólöf Lárusdóttir: Kom inni í stjórn Umf. Ármanns 2018, formaður frá 2019 og til dagsins í dag en nú í UMFÁS. Hefur sýnt mikinn dugnað og elju að byggja upp íþróttastarf fyrir fólk á öllum aldri í Skaftárhreppi. Hefur byggt upp traustan og góðan grunn sem samfélagið mun búa að til framtíðar. Til viðbótar við þetta sat Fanney í varastjórn USVS 2019-2022, meðstjórnandi 2022-2024 og ritari í stjórn 2024-2025.

Starfsmerki UMFÍ:
Árni Jóhannsson: Kom inni í stjórn USVS árið 2020 og hefur þar gegnt stöðu gjaldkera innan stjórnar til dagsins í dag. Hefur gefið mikið af sér undanfarin ár í þágu íþrótta- og æskulýðsstarf í Vestur-Skaftafellssýslu og alltaf tilbúinn að stökkva til ef eitthvað er, einn af þessum sem allir vilja hafa í sínu liði.
Ólafur Magnússon: Virkur félagi í Ungmennafélaginu Ármanni um langt skeið á síðustu öld. Einn af lykilmönnunum í uppbyggingu íþróttavallarins á Kleifum þar sem hann gaf af sér óteljandi vinnustundir. Ólafur átti alltaf lausa stund fyrir Ungmennafélagið Ármann og var til viðbótar við þetta mjög virkur í öllu mótastarfi bæði sem keppandi og sjálfboðaliði.

Þórdís Erla Ólafsdóttir Dýrfjörð: Burðarás í starfi Ungmennafélagsins Kötlu undanfarin ár. Hefur setið bæði í stjórn og varastjórn félagsins og er nú í nefndarstarfi. Hefur gengið í öll þau verk sem þarf að leysa sama hvort það varðar mótahald eða aðra viðburði. Frábær liðsmaður sem leggur sig alltaf fram af einlægum áhuga í því sem hún tekur sér fyrir hendur.