Ertu búin/n að senda umsókn í Fræðslu- og verkefnasjóð?
Við minnum fólk á að enn er opið fyrir innsendingu umsókna í Fræðslu- og verkefnasjóð UMFÍ. En það fer að styttast í lokafrest. Umsóknarfrestur er til og með 1. nóvember eða fram að miðnætti á sunnudagskvöld.
UMFÍ hvetur sérstaklega til þess að sótt verði um styrki vegna verkefna í samræmi við reglugerð sjóðsins en stjórn hans leggur áherslu á að veita styrki til:
- Fræðslu- og forvarnaverkefna sem eru til þess fallin að auka þekkingu og fagmennsku innan héraðs, félags og/eða deildar.
- Þjálfara- og/eða dómaranámskeiða.
- Verkefna sem stuðla að aukinni þekkingu og varðveislu á menningu og sögu héraðs, félags og/eða héraðs.
- Verkefna og/eða viðburða sem hafa það að markmiði að efla þjálfun forystufólks, leiðbeinenda og sjálfboðaliða í íþróttastarfsemi.
- Verkefni sem stuðla að stærðarhagkvæmni og samnýtingu í upplýsingatæknimálum.
Sjóðurinn styrkir EKKI tækja-, áhalda- og búnaðarkaup, fundakostnað (þ.m.t. veitingar) og almennan rekstur félaga. Styrkur er að öllu jöfnu aldrei hærri en 400.000 kr.
Hver geta sótt um styrk?
Rétt til styrkveitingar úr sjóðnum eiga allir félagar í ungmennafélögum sem eru virkir í starfi og hafa uppáskrift síns félags eða sambands til að afla sér aukinnar þekkingar á sínu sérsviði sem talið er að geti nýst viðkomandi félagi, sambandi og ungmennafélagshreyfingunni í heild. Einnig eiga stjórn og nefndir UMFÍ, héraðssambönd, ungmennafélög og deildir innan þeirra rétt á að sækja um styrk úr sjóðunum.
Umsóknarfrestir í Fræðslu- og verkefnasjóð UMFÍ eru tveir á ári, að vori og hausti. Úthlutun úr sjóðnum í haustúthlutun er í desember.