Farþjálfarinn kominn í loftið
Farþjálfarinn er ætlaður íþróttafélögum og svæðum sem vilja fá til sín þjálfara með þekkingu á ákveðnum íþróttagreinum, og þjálfurum sem vilja bjóða upp á farþjálfun.
Markmiðið er að kynna íþróttagreinar fyrir núverandi og nýjum iðkendum, auka fjölbreytni íþróttagreina og styðja við öflugt íþróttastarf um allt land.
Þjálfunin getur verið í formi styttri námskeiða, til dæmis helgarnámskeiða, eða fastrar þjálfunar einu sinni í viku. Þjálfari og félag semja sín á milli um fyrirkomulagið.
Hvernig virkar þetta?
Þjálfarar sem hafa áhuga á að bjóða upp á farþjálfun geta skráð sig í gegnum vef Svæðisstöðva íþróttahéraða eða haft samband við svæðisfulltrúa íþróttahéraða.
Íþróttafélög sem vilja fá lista yfir farþjálfara fylla út eyðublað á sama vef eða hafa samband við svæðisfulltrúa.
Komum upplýsingum til þjálfara
UMFÍ hvetur íþróttahéruð og félög til að kynna verkefnið fyrir sínum þjálfurum. Því fleiri þjálfarar sem skrá sig, því fleiri tækifæri skapast til að kynna nýjar greinar fyrir börnum og ungmennum víða um land.
Nánari upplýsingar og skráning eru á vef Svæðisstöðva íþróttahéraða: https://www.siu.is/farþjalfarinn
Hansína Þóra Gunnarsdóttir, sérfræðingur hjá ÍSÍ, svarar spurningum um verkefnið. Netfang hennar er hansina@isi.is.
Svæðisstöðvar íþróttahéraða eru samstarfsverkefni ÍSÍ og UMFÍ.