Fjórir nýir svæðisfulltrúar
Fjórir nýir svæðisfulltrúar íþróttahéraðanna eru komnir til starfa innan hreyfingarinnar. Þau Ólöf Sara Gregory og Stefán Þór Borgþórsson eru nýir svæðisfulltrúar á höfuðborgarsvæðinu. Ólöf Sara er staðsett hjá Íþróttabandalagi Reykjavíkur (ÍBR) en Stefán á skrifstofu Íþróttabandalags Hafnarfjarðar (ÍBH). Þá hafa þær Emilía Halldórsdóttir og Rebekka Rán Egilsdóttir verið ráðnar tímabundið hvor í sinn landshlutann.
Emilía kemur inn á Vesturland í stað Gunnhildar Gunnarsdóttur, sem er í fæðingarorlofi. Hún er með aðsetur í íþróttamiðstöðinni á Jaðarsbökkum á Akranesi. Rebekka Rán kemur inn fyrir Erlu Gunnlaugsdóttur á Austurlandi og vinnur hún út frá Reyðarfirði.
Guðmunda Ólafsdóttir, sem sér um stefnumótunarvinnu íþróttafélaga og sveitarfélaga víða um land, vinnur náið með starfsfólki svæðisstöðvanna á hverju landsvæði og tengir þá vinnu saman við samlegðaráhrifin sem fram koma í stefnumótunarvinnu íþróttahreyfingarinnar.
Hér að ofan er mynd af Ólöfu Söru og Stefáni en að neðan mynd af Emiliu og Rebekku.