Fara á efnissvæði
27. nóvember 2026

Forseti Íslands hvatti íþróttahreyfinguna til að hlusta á ungt fólk

„Framtíð okkar er bara jafn sterk og staða og líðan ungs fólks er í dag,“ sagði Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, í ávarpi sínu í vel sóttu útgáfuhófi skýrslunnar Raddir ungs fólks í gær.

Halla hvatti íþróttahreyfinguna til að hlusta á ungt fólk og virkja það í stað þess að hafa það til skrauts á ráðstefnum eða fundum. Hún sagði ungt fólk kalla eftir fleiri rýmum þar sem það geti verið saman án síma og samfélagsmiðla, og þar skipti íþróttastarfið miklu máli. Ekki ætti að þurfa að vera á afreksbraut til að taka þátt. Einmanaleiki og kvíði gerðu oft vart við sig á unglingsárum, einmitt þegar mörg börn hætta í íþróttum.

Skýrslan byggir á átta samráðsfundum UMFÍ og ÍSÍ með ungmennum á aldrinum 15–25 ára víða um land. Skilaboðin eru skýr: ungt fólk vill íþróttastarf sem snýst um gleði, félagsskap og jöfn tækifæri.

Ungmennin vilja lægri kostnað, svo sem lægri eða engin æfingagjöld, hærri frístundastyrki og íþróttapassa þar sem eitt gjald veitir aðgang að fleiri greinum. Þau vilja að afreksvæðing og sérhæfing hefjist síðar og leikurinn fái að lifa lengur, en að áfram verði gott starf fyrir þau sem stefna á afrek. Þau óska eftir fleiri leiðum til þátttöku, eins og opnum æfingum og B-liðum fyrir þau sem vilja æfa sér til ánægju.

Þá kalla ungmennin eftir menntuðum þjálfurum sem hlusta, hvetja og sinna öllum iðkendum, ekki bara þeim bestu. Þau vilja betri æfingatíma og aðstöðu og að stúlkur fái sömu aðstöðu, æfingatíma og þjálfun og strákar. Einnig vilja þau að íþróttaiðkun, þjálfun og dómgæsla verði metin til eininga í námi og að dregið verði úr ójöfnuði milli landshluta, til dæmis með ferðasjóði og fleiri mótum á landsbyggðinni. Loks vilja þau að sjálfboðaliðum, ekki síst ungum dómurum, sé sýnt meira þakklæti og virðing.

Eftir kynningu á efni skýrslunnar var pallborð þar sem fulltrúar íþróttahreyfingarinnar, sveitarfélaga og stjórnvalda ræddu málin frekar og svöruðu spurningum sem byggðu á því sem ungmennin sögðu á fundunum. Í pallborði voru handboltakappinn Ólafur Stefánsson, Skúli Bragi Geirdal, varaformaður UMFÍ, Eysteinn Pétur Lárusson, framkvæmdastjóri KSÍ, Kári Jónsson, íþrótta-, tómstunda- og forvarnarfulltrúi Garðabæjar, Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, og Linda Heiðarsdóttir, fyrrverandi skólastjóri í Réttarholtsskóla og nú skrifstofustjóri í mennta- og barnamálaráðuneytinu. Fundastjórar sem stýrðu pallborðsumræðum voru þau Kristín Ragna Finnsdóttir, sem situr í ungmennaráði KSÍ, og Jón Gunnar Shiransson.

Í pallborðinu kom meðal annars fram að íþróttir snúist um upplifun. Íþróttahreyfingin eigi því að hlusta á ungt fólk og skapa aðgengi að íþróttum. Gleðin eigi að vera rauði þráðurinn í íþróttaiðkun og af þeim sökum meðal annars var varað við því að skipta börnum of snemma upp í getuhópa.

Linda sagði hlutverk þjálfara hafa breyst mikið frá því sem áður var. „Það er eiginlega orðið það mikilvægasta sem við þurfum að gera í dag, að styðja við þjálfara,“ sagði hún og svaraði með því kalli eftir auknum kröfum um menntun þjálfara og skýrari ábyrgðarkeðju milli ráðuneyta, sveitarfélaga, félaga og skóla.

Eftir áramót er stefnt að því að kynna niðurstöður Radda ungs fólks á öllum svæðunum átta og halda samtalinu áfram. Unnið verður með hverju svæði að þeim áherslum sem eiga þar mest við.

Skýrsluna er hægt að lesa hér.