Fara á efnissvæði
14. apríl 2026

Gunnar Gunnarsson sæmdur Gullmerki UMFÍ

Gunnar Gunnarsson, fyrrverandi formaður Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands  (UÍA), var sæmdur Gullmerki UMFÍ, á ársþingi sambandsins 11. apríl síðastliðinn. Gunnar hefur meðal annars setið í stjórn UMFÍ og ýmsum nefndum. Sigurður Óskar Jónsson, sem situr í stjórn UMFÍ, afhenti Gunnari Gullmerkið. Hann var sjálfur sæmdur Gullmerkinu á þingi Ungmennsambandsins Úlfljóts (USÚ) á dögunum.

Góð mæting var á þing UÍA en þangað mættu 53 fulltrúar frá 29 aðildarfélögum. Anita Ösp Ómarsdóttir var þingforseti. 

Fáar tillögur lágu fyrir þinginu, reikningar UÍA voru samþykktir ásamt fjárhagsáætlun fyrir komandi ár og var stjórn UÍA endurkjörin.

 

Íþróttamaður UÍA 

Glímumaðurinn Hákon Gunnarsson var kjörinn íþróttamaður UÍA. Sama dag og þingið fór fram varð hann glímukóngur Íslands á Íslandsmótinu í glímu og varði þar með titil sinn.

Kristín Embla Guðjónsdóttir, sem einnig kemur úr aðildarfélagi UÍA, varð glímudrottning Íslands og varði sömuleiðis titil sinn.

Viðar Sigurjónsson, sérfræðingur á stjórnsýslusviði ÍSÍ, var fulltrúi ÍSÍ. Svæðisfulltrúar íþróttahéraðanna á Austurlandi sátu þingið sömuleiðis og fluttu þær kynningar um störf sín og helstu verkefni á svæðinu.