Fara á efnissvæði
27. apríl 2026

Helga og Sigurður sæmd starfsmerki UMFÍ

Þau Helga Daníelsdóttir og Sigurður Bjarni Rafnsson voru sæmd starfsmerki UMFÍ á héraðsþingi Ungmennasambands Skagafjarðar (UMSS) á dögunum. Þau hafa bæði setið lengi í stjórn Skíðadeildar Tindastóls, aðildarfélags UMSS, Sigurður hefur verið formaður deildarinnar og situr Helga í því sæti nú.

Góð mæting var á þingið og sátu það 56 fulltrúar aðildarfélaga UMSS af þeim 67 sem var boðið.

Þingforseti var Halldór Lárusson, annar tveggja svæðisfulltrúa íþróttahéraðanna á Norðurlandi vestra. Þingið var hefðbundið, fjölmargar tillögur lágu fyrir því og voru þær allar samþykktar. Á meðal þeirra var tillaga um lagabreytingu, breytingar á reglugerð um lottóúthlutun og hvatningartillaga til aðildarfélaga UMSS um að sækja um viðurkenningu til ÍSÍ sem Fyrirmyndarfélög.

Á þinginu var skrifað undir samning UMSS við UMFÍ og sveitarfélagið Skagafjörð um framkvæmd Unglingalandsmóts UMFÍ sem haldið verður á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina. 

Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ, var gestur þingsins og afhenti hann viðurkenningar. Viðar Sigurjónsson, sérfræðingur á stjórnsýslusviði ÍSÍ, var fulltrúi ÍSÍ.

Gunnar Þór Gestsson var endurkjörinn formaður UMSS. Stjórn UMSS skipa þá Þuríður Elín Þórarinsdóttir gjaldkeri, Þorvaldur Gröndal ritari og þær Kolbrún Passaro og Dagbjört Rós Hermundsdóttir meðstjórnendur. Í varastjórn eru þau Freydis Þóra Bergsdóttir, Indriði Ragnar Grétarsson og Ragnheiður Lára Brynjólfsdóttir.

 

Meira um handhafa starfsmerkja

Helga Daníelsdóttir hefur verið í stjórn skíðadeildar Tindastóls frá árinu 2012, lengst sem gjaldkeri. Hún er nú formaður deildarinnar. Helga hefur stjórnað foreldrafélagi deildarinnar og sinnt skíðaþjálfun og kennslu undanfarin ár. Hún er ein af þeim sem er alltaf fyrst til að bjóða sig fram ef það þarf að vinna einhver verkefni m.a. í körfunni, alltaf tilbúin til að aðstoða, leiðbeina og hvaðeina. 

Sigurður Bjarni Rafnsson hefur verið virkur í starfsemi skíðadeildarinnar lengi og er ötull talsmaður fyrir uppbyggingu skíðaaðstöðu Tindastóls og átti hann stóran þátt í því að efri lyftan á skíðasvæðinu og töfrateppið urðu að veruleika og að skíðaskálinn var byggður. Sömuleiðis var hann hvatamaður þess að bundið slitlag var lagt upp í fjallið. Hann var formaður deildarinnar árin 2008 til 2024 og hefur verið sjálfboðaliði á Unglingalandsmótum UMFÍ á Sauðárkróki.