Iðkendur ÍA læra mjúkar hreyfingar
„Við sjáum fyrir okkur fulla stúku af iðkendum og áhugasömum um sýningafimleika. Þetta er mjög góður viðburður og vinnustofur fyrir alla okkar iðkendur og þá sérstaklega hvetjandi fyrir iðkendur í áhugahópum sem ekki vilja endilega keppa að sjá að það sé hægt að stefna á sýningarfimleika,“ segir Eyrún Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Fimleikafélags ÍA.
Danski sýningahópurinn Verdensholdet kom til landsins um miðja síðustu viku, dvaldi frá miðvikudegi til sunnudags á Selfossi og hélt þaðan í gær til Akraness. Þar voru haldnar æfingar fyrir unga iðkendur og æfingar fyrir lengra komna þjálfara þar sem farið var í upphitunarleiki og hópefli. Þar að auki var unnið að því að halda vinnustofu í dansi.
Um 400 iðkendur æfa fimleika hjá Fimleikafélagi ÍA auk um 120 yngri iðkenda sem æfa í Íþróttaskólanum og um 70 iðkenda í parkour.
Eyrún segir fimleikafólk geta lært töluvert af Dönunum.
„Verdensholdet samanstendur af landsliði Dana í sýningafimleikum með mikla reynslu. Þau eru sérfræðingar í mjúkum hreyfingum á dansgólfinu sem er kannski ekki endilega okkar sterkasta hlið og því geta þau kennt okkur heilmikið,“ segir Eyrún og bætir við að mikill hagur sé fyrir iðkendur ÍA að fá meðlimi Verdensholdet í heimsókn.
Sýningar fram undan
Verdensholdet verður með stutta sýningu í fimleikahúsi ÍA við Vesturgötu í dag klukkan 17:30. Þetta er 30 mínútna sýning eftir vinnustofurnar. Hópurinn heldur svo áfram ferð sinni um landið, stoppar á nokkrum stöðum og sýnir, þar á meðal á Egilsstöðum.
Sýningahópurinn dvelur við æfingar í Garðabæ dagana 11.–14. mars. Hann heldur stórsýningu í íþróttahúsinu í Ásgarði í Garðabæ föstudaginn 13. mars. Sú sýning er töluvert lengri og meiri að umfangi en hinar sýningarnar.
Miðasala á sýninguna í Garðabæ er í fullum gangi á Stubb.
📍 Íþróttahúsið Ásgarður í Garðabæ
📅 13. mars
⏰ Hefst kl. 18:00
Miðasala á Stubbi: Keyptu miða hér!
Fleiri fréttir af Verdensholdet:
Verdensholdet með sýningu í Garðabæ
Myndir með þessari umfjöllun eru frá sýningu Verdensholdet á Selfossi á laugardag.