Iðkendur læra mikið af dönsku fimleikafólki
„Það er geggjað að fá þessar flottu fyrirmyndir í Verdensholdet í fimleikasalinn. Þau eru svo opin og tilbúin að vera með okkur í öll því sem þarf og ná vel til iðkendanna,“ segir Bergþóra Ingvarsdóttir, framkvæmdastjóri fimleikadeildar Selfoss.
Danski sýningahópurinn Verdensholdet kom til landsins á miðvikudagsmorgun eftir langt ferðalag frá Suður-Ameríku og hélt beint til Selfoss. Þar var þeim tekið vel, meðal annars með léttum hádegisverði í Sunnulækjarskóla áður en þau kynntu sér aðstæður í fimleikasalnum og fóru að æfa.
Verdensholdet heyrir undir DGI (Danmarks Gymnastik og Idrætsforeninger), sem eru eins konar systursamtök UMFÍ í Danmörku.
Fimleikahópurinn Verdensholdet samanstendur af 28 einstaklingum (14 konum og 14 körlum) auk þjálfara og starfsmanna og munu þau dvelja hér dagana 4.– 27. mars. Hópurinn er hér á landi á vegum UMFÍ, í samstarfi við Fimleikasamband Íslands (FSÍ) og fimleikafélög á ýmsum stöðum.
Selfoss er fyrsti áfangastaðurinn. Þaðan fer hópurinn til Akraness og Egilsstaða
„Það hefur verið ótrúlega gaman að taka á móti þeim,“ segir Bergþóra. „Þau voru glöð að vera komin hingað eftir langt ferðalag og hafa þegar náð góðri æfingu í salnum hjá okkur. Þau fóru líka á æfingu í GYM 800 og í sundferð í Sundhöll Selfoss, sem sveitarfélagið Árborg bauð upp á. Í gær var þeim svo boðið í mat á sveitabæ sem einn þjálfarinn okkar á. Þar fengu þau saltkjöt, hangikjöt og svið og fleira að borða,“ bætir hún við og leggur áherslu á að stuðningur sveitarfélagsins og GYM 800 hafi verið mjög góður.
Ná vel til iðkenda
Verdensholdet hefur haldið vinnustofur fyrir iðkendur fimleikadeildarinnar á Selfossi. Í gær var vinnustofa með iðkendum á aldrinum 9 til 14 ára en á morgun verður vinnustofa fyrir eldri iðkendur fimleikadeildar Selfoss með meðlimum Verdensholdet.
„Það var mikil ánægja í vinnustofunni í gær,“ segir Bergþóra. „Þau ná rosalega vel til krakkanna og sýningarhópurinn sjálfur er mjög ánægður með viðtökurnar.“
Gista hjá íbúum
Verdensholdet-hópurinn hefur verið á ferðalagi um allan heim og leita meðlimir hans eftir því að gista hjá landsmönnum á hverjum stað. Það sama er uppi á teningnum á Selfoss. Af þessum sökum er hópurinn nokkuð dreifður á Selfossi en fær fínasta tækifæri til að upplifa íslenskt heimilislíf.
Bergþóra segir það ganga ótrúlega vel.
Stórsýning í Garðabæ
Sýningahópurinn Verdensholdet er á ferð um landið í mánuðinum og er Selfoss fyrsti áfangastaðurinn. Auk þess að halda æfingar og vinnustofur og kynna sér lífið á hverjum stað þá heldur hópurinn 30 mínútna sýningar þar sem hann stoppar.
Sýning Verdensholdet á Selfossi verður í íþróttahúsinu Baulu á morgun, laugardaginn 7. mars klukkan 17:00. Bergþóra tekur fram að öllu verður til tjaldað í Baulu.
„Húsið er ekki stórt. Við drögum stúkuna fram en síðan þarf fólk að sitja allt um kring í salnum.“
Stóra sýningin í Garðabæ
Eins og áður sagði halda meðlimir Verdensholdet stuttar sýningar á hverjum stað sem þau stoppa á. Í Garðabæ verður hins vegar stórsýning föstudaginn 13. mars klukkan 18:00 í íþróttahúsinu Ásgarði í Garðabæ. Búist er við miklum fjölda fólks.
Forsetahjónin hafa boðað komu sína. Það hefur líka gert Erik Vilstrup Lorenzen, sendiherra Dana á Íslandi.
Hingað til lands koma jafnframt þau Charlotte Bach Thomassen, formaður dönsku landssamtakanna DGI (Danske gymnastik- og idrætsforeninger), og Jens Otto Størup, framkvæmdastjóri DGI.
Þau Charlotte og Jens koma hingað til lands sérstaklega til að sjá sýninguna. Daginn eftir munu þau standa fyrir opnum fundi um stöðu íþrótta, hreyfingar og lýðheilsu í Danmörku og áskoranir og tækifæri í íþróttahreyfingunni.
Fundurinn verður í íþróttamiðstöðinni í Laugardal laugardaginn 14. mars á milli klukkan 13:00 - 15:00.
Miðasala á sýninguna í Garðabæ er hafin á Stubb.
📍 Íþróttahúsið Ásgarður í Garðabæ
📅 13. mars
⏰ Hefst kl. 18:00
Miðasala á Stubbi: Keyptu miða hér!
Myndirnar sem hér fylgja með voru teknar af hópnum þegar hann kom til Selfoss á miðvikudag og af æfingum í vikunni.
Fleiri fréttir af Verdensholdet: