Iðkendur skemmtu sér á Listleikum
„Þetta var virkilega skemmtilegt og gaman að sjá hvað iðkendur skemmtu sér vel og kynntust mörgum greinum á Listleikum Allir með,“ segir Helga Olsen, skautaþjálfari hjá Íþróttafélaginu Öspinni og íþróttagreinastjóri Special Olympics á skautum.
Hún var ein af þeim þjálfurum sem stóðu vaktina á Allir með Listleikunum þegar þeir voru haldnir í annað sinn í Egilshöll um helgina. Um 30 þátttakendur mættu á leikana frá fimm ára aldri og upp að þrítugu ásamt foreldrum.
Listleikarnir voru haldnir í fyrsta sinn í janúar en markmið þeirra er að kynna þær listgreinar sem í boði eru fyrir iðkendum með fötlun og ýmsar áskoranir.
Listleikarnir urðu til upp úr viðleitni íþróttagreinastjóra Special Olympics til að auka þátttöku barna og ungmenna í íþróttum þvert á greinar. Greinarnar eru fjórar og styðja hver við aðra. Þetta eru nútímafimleikar, jassballett undir handleiðslu þjálfara hjá JSB og samkvæmisdans hjá Hvönn. Deginum var svo lokað með skautum á vegum Íþróttafélags Asparinnar, sem sá líka um fimleikana.
Fjölga tækifærum iðkenda
Listleikarnir eru hluti af Allir með, samstarfsverkefni ÍSÍ, UMFÍ og Íþróttasambands fatlaðra (ÍF) og er það styrkt af félags- og vinnumálaráðuneytinu, heilbrigðisráðuneytinu og mennta- og barnamálaráðuneytinu. Markmið Allir með er að kynna íþróttir fyrir börnum með fatlanir auk þess að fötluð börn hafi tækifæri til að æfa íþróttir í sínu hverfisfélagi og geti byrjað á sama aldri og ófötluð börn.
Margir viðburðir eru haldnir um allt land allt árið um kring á vegum Allir með. Stóru viðburðirnir eru Íslandsleikarnir og Allir með-leikarnir, sem báðir eru haldnir einu sinni á ári að vori og vetri.
Næsti viðburður tengdur Allir með eru Allir með-leikarnir sem að þessu sinni verða haldnir 31. október í Laugardalshöll. Þá er hrekkjavaka og eru þátttakendur hvattir til að mæta í hrekkjavökubúningum.
Hér að neðan má sjá myndir af Listleikunum sem Magnús Orri Arnarsson og Hafsteinn Snær Þorsteinsson tóku.