Fara á efnissvæði
23. september 2026

Íslensk getspá greiðir 500 milljóna króna aukagreiðslu

Ástæða er til þess að fagna í íþróttahéruðum landsins í dag. Stjórn Íslenskrar getspár ákvað á fundi sínum á dögunum að greiða 500 milljóna króna aukagreiðslu vegna góðrar afkomu fyrirtækisins á árinu. UMFÍ á 13,3% hlut í Íslenskri getspá og fær því 66,5 milljónir króna.   

Upphæðin rennur að langstærstum hluta til sambandsaðila UMFÍ og að hluta í Fræðslu- og verkefnasjóð UMFÍ og í önnur verkefni UMFÍ, sem styðja við grasrótarstarf um allt land. 52,5 milljónir króna berast inn á reikning íþróttahéraðanna í dag.

Greiðslan nú er viðbót við mánaðarlegar greiðslur sem berast frá Íslenskri getspá.

Aukagreiðslunnar njóta sambandsaðilar UMFÍ, 25 íþróttahéruð landsins. Innan íþróttahéraðanna eru um 450 íþrótta- og ungmennafélög um allt land. 

 

Vonum að velgengnin haldi áfram

Þetta er fjórða árið sem Íslensk getspá greiðir út aukagreiðslu til eigenda sinna. Aðrir eru ÍSÍ, sem á 46,67% hlut í Íslenskri getspá, og ÖBÍ, sem á 40% hlut. 

Ljóst er að miklu skiptir fyrir íþróttalíf á Íslandi að leita lukkunnar með kaupum á Lottómiða og styðja með því móti við íþrótta- og ungmennafélagshreyfinguna um allt land.

„Um leið og við fögnum slíkum árangri vonumst við til þess að velgengni fyrirtækisins haldi áfram. Við þökkum stjórn og starfsfólki Íslenskrar getspár fyrir góð störf og þeirra framlag. Þetta skiptir okkur máli,“ segir Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ.