Íþróttafélög bjóði áhugafólki að leika sér
Framhaldsboltinn í Kaplakrika er frábær vettvangur fyrir drengi sem langar að æfa fótbolta en hafa hvorki tíma né áhuga á að komast nær atvinnumennsku.
„Íþróttafélög þurfa að hugsa út fyrir afrekslínuna. Það eru ekki bara tvær leiðir í fótbolta, annaðhvort engin æfing eða afreksþjálfun. Við bjóðum upp á millileiðina,“ segir knattspyrnumaðurinn og þjálfarinn Atli Guðnason. Hann hóf í fyrravor að stýra Framhaldsbolta í Kaplakrika hjá FH.
Framhaldsboltinn er hugsaður fyrir unga drengi sem eru að byrja í framhaldsskóla en hafa annaðhvort hætt í hefðbundnu liða- og afreksstarfi eða hafa hvorki áhuga eða tíma til að æfa fjórum eða fimm sinnum í viku með sínu félagi.
Atli segir íþróttafélög standa frammi fyrir brottfalli ungmenna úr íþróttum þegar komið er í framhaldsskóla. Þau hafi ekki vettvang til að æfa á eigin forsendum og lítið bjóðist nema líkamsræktin og bumbubolti eftir tvítugt. Hann hafi setið á hugmyndinni í svolítinn tíma og nefnt hana við marga uns hann ýtti henni úr vör ásamt FH-ingnum og frjálsíþróttakonunni Silju Úlfarsdóttur í byrjun árs 2025.
Stjórnendur FH tóku vel í pælinguna.
„Þau hjá FH tóku mjög vel í þetta og voru tilbúin til að gefa tíma í íþróttahúsi til að koma verkefninu af stað,“ segir Atli og sendi inn umsókn í Fræðslu- og verkefnasjóð UMFÍ. Verkefnið hlaut góðan meðbyr og skilaði 400 þúsund krónum í haustúthlutun sjóðsins.
Styrkurinn gerði Atla og Silju kleift að hefja verkefnið.
Óvæntir þátttakendur
Í styrkumsókn kemur fram að Framhaldsboltinn geti styrkt endurkomu unglinga í fótbolta. Bæði Atli og Silja gerðu ráð fyrir að á æfingar kæmu Hafnfirðingar sem höfðu æft undir merkjum FH eða af einhverjum ástæðum ekki fundið sig í íþróttum.
Nokkrir Hafnfirðingar komu. En meirihluti þeirra sem svöruðu kallinu kom frá öðrum sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins, svo sem Reykjavík og Garðabæ.
„Þetta byrjaði hægt og rólega og að jafnaði komu um 12 strákar á æfingu. Þegar við buðum í lokahóf eftir önnina í maí komu 20 drengir. Það er góður fjöldi,“ segir Atli og rifjar upp að á vorönn hafi verið boðið upp á tvær kvöldæfingar í viku. Fleiri hafi komið seinni dagana og þess vegna hafi verið ákveðið að fækka æfingum og bjóða aðeins upp á eina æfingu í viku.
Góður félagsskapur
Æfingarnar í Framhaldsboltanum einkennast öðru fremur af ánægjunni af því að koma saman, hreyfa sig með öðrum og spila fótbolta án þess að ætla að skara fram úr. Félagslegi þátturinn er líka sterkur.
„Þegar maður hættir að æfa á fullu þá er gott að komast út úr húsi, hitta aðra og leika sér. En þeir sem koma að æfa með okkur þurfa heldur ekki að hafa æft áður. Þeir geta komið,“ segir Atli og bendir á að æfingar eins og Framhaldsboltinn hjá FH sé góður hluti af forvarnarstarfi, sem geti haldið áfram þótt viðkomandi hafi hætt að æfa eins og áður.
„Ungt fólk þarf að sinna skólanum, félagslífinu og jafnvel vinnu. Fótbolti og æfingar eru það fyrsta sem detta út, því þær eru tímafrekar og dýrar,“ segir Atli en bendir á að ungmenni geti enn nýtt frístundakortið á þessum aldri og því sé upplagt að íþróttafélög bjóði upp á æfingar sem þessar, svo ungmennin geti allavega æft með sínu félagi. „Fleiri íþróttafélög þurfa að gera þetta og bjóða upp á fleiri greinar fyrir ungmenni sem vilja æfa á eigin forsendum – og hjá sínu félagi,“ segir Atli að lokum.
Í hnotskurn snýst framhaldsboltinn um:
- Að hafa gaman
- Að tilheyra hópi
- Sporna við brottfalli
- Byggja upp sjálfstraust
- Búa til millistig í íþróttastarfi
- Markmiðið að fá stráka á framhaldsskólaaldri (16-19 ára) til að mæta á æfingar.
- Æfingar eru á miðvikudögum hjá FH klukkan 19:00.
Þú getur lesið allt í Skinfaxa
Viðtalið og umfjöllunin er er í Skinfaxa, tímariti UMFÍ. Þú getur smellt á myndina hér að neðan og lesið rafræna útgáfu af blaðinu.
Þú getur líka smellt hér og fengið nýjasta tölublað Skinfaxa sent til þín í tölvupósti um leið og það kemur út. Áskriftin er ókeypis.
Smelltu hér:
Já æði! Mig langar að fá Skinfaxa í tölvupósti
Lesa Skinfaxa